»  off record  »  Alkahundar
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Alkahundar
Miðvikudagur, 13. ágúst 2003

Hundurinn er samkvæmt kenningunni besti vinur mannsins. Hundar eru líka ekki jafn fláráðir og kettir og annað fólk og því alls ekki galið að setja allt sitt traust á þá. Það er allt of langt mál að fara að telja upp alla þá kosti sem hundurinn hefur fram yfir fólk þegar það kemur að mannlegum samskiptum en hann hefur löngum reynst blindum betri en enginn og gefið félagslega fötluðum einstaklingum og uppakvikindum tækifæri til að fá útrás fyrir tilfinningar sínar.

Þá eru dýrin þefnæm með eindæmum og eru sum hver þjálfuð sérstaklega til að finna eiturlyf. Þeir hundar nefnast hasshundar og hafa í þjónustu lögreglunnar gert mörgum fíklinum lífið leitt. Ég er nú búinn að finna nýtt djobb fyrir uppgjafahasshunda; þeir geta nefnilega gagnast fíklum í bata sem svokallaðir Alkahundar. Þeir eru þá forriaðir til að fylgja óvirka alkanum hvert sem hann fer og standa vörð um heimili hans. Hundurinn glefsar þannig í alla gamla neyslufélaga sem ætla að mæta í heimsókn á ókristilegum tíma, skellir á skeið ef sjúklingurinn gengur í áttina að vínbúð og dregur hann eftir götunni til sponsorsins. Hundinn mætti einnig fá til að gelta að póstinum, stefnuvottum og öðru hyski sem er líklegt til að dúkka upp með alls kyns neyslusyndir og ógna batanum. Schaeffer eða Doberman, panódíl og AA-bókin. Þetta getur ekki klikkað.


| 17:29 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff