Þriðjudagur, 26. ágúst 2003
Það fór eins og mig grunaði; Angelina hefur rutt Monroe af skjáborðinu og ekkert nema gott um það að segja. Hún er líka komin upp á vegg yfir borðinu mínu í vinnunni samstarfsfólki mínu til mismikillar gleði.
Strákarnir hafa að sjálfsögðu lítið verið að kvarta en Kollu Bergþórs líst illa á að ég hafi gelluna hangandi yfir mér. Segir þetta uppátæki fyrstu vísbendinguna um að ég sé á fallbraut þar sem Angelina sé glyðra, fyllibytta, dópisti, geðsjúklingur og eitthvað þaðan af verra. Ég minnti Kollu á að Angelina er líka vond stelpa sem hefur afneitað föður sínum en þá kom EIR snótinni til bjargar og benti á að hún sneri baki við pabba sínum fyrir það að vera alltaf að tuða í sér og banna henni að drekka, dópa og vera geðveik. Það er auðvitað ómögulegt að eiga svoleiðis föður.
Hvað sem öllum þessum vangaveltum líður og þeirri staðreynd að nýja Tomb Raider myndin er rusl þá er Angelína aðalbeibið og algert uppáhalds og fer hvergi, hvorki af veggnum né skjáborðinu.
Viska dagsins er í boði Löru Croft:
Everything lost is meant to be found.
(Geri þó ekki ráð fyrir að hún taki trúverðugleika Fréttastofu Stöðvar 2 með í reikninginn).
| 21:45 |