»  off record  »  Bögg
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Bögg
Miðvikudagur, 20. ágúst 2003

Búinn að dílíta 275 vírusskeytum í dag og öðru eins í gær. Ferlega var samt freistandi að opna wicked screensaverinn frá Landsbankanum. Þetta fer samt að verða soldið þreytandi. Geti þessi nördafífl bara ekki tekið sig til og drepið Bill Gates frekar en að vera að bögga mann með þessum vírusum?

Mér sýnist þetta skjallbandalag alveg vera að lognast út af. Það vekur þó vonir að Pönkari í Vesturbænum er byrjaður aftur og að Ingólfur kleinubóndi, sá hraðlygni andskoti, þykist ætla að fylgja í kjölfarið. Þór gæti líka verið að koma sterkur inn og birtir vonandi highlights úr blóðsuguritgerðinni. Heillandi fyrirbæri vampírurnar. Totil er hins vegar búinn að þegja lengur en ég og Palli Svans segist hafa haft skemmtilegri hluti að gera undanfarið en að blogga. Skil það svo sem og er sjálfur hættur að nennessu eftir að ég hætti að drekka. The Emperor had forseen this. Það fer ölkum betur að tjá sig á fundum en bloggi.


| 21:34 |
komment

Hei!
Hvenær laug ég?

Nr. 1 | ingó | 21.08.2003 | 14:13:11 | [+] |

Bloggið þitt er það eina sem heldur mér frá flöskunni.

Nr. 2 | AlanHudson | 21.08.2003 | 18:54:37 | [+] |

Hudson!

Loksins ég fann þig, líka þú sást mig
ljóminn úr augunum skein!

Rekst maður á þig hérna inni þegar sísonið byrjar? (geng út frá því að Don Tóti opni það með pomp og pragt. Hefi heyrt einhver ætli að líma "badabing" á Skoda ræfil sem sjósettur verður á morgun).

tc

Nr. 3 | Tony Clifton | 21.08.2003 | 19:17:05 | [+] |

Já maður er að komast í gírinn. Búinn með síðasta sólkremsbrúsann og kominn tími á sjónvarpsgláp, snakk og bjórþamb á nærbrókunum einum saman. Hreinum auðvitað og stífpressuðum, þökk sé frúnni - maður verður að hafa smá stíl og sjálfsvirðingu!

Svo er bara að skella sér í lögfræðina og stefna beibt á Hæstarétt, við DO erum nefnilega skyldir skv. Íslendingabók.

Nr. 4 | AlanHudson | 21.08.2003 | 19:31:07 | [+] |

Púfff, TC er Home Alone þessa dagana.

Ísskápurinn fullur af ís og bjór. Blúnduskyrtan efst í haug á einu borðstofustólnum sem m.a. samastendur af sundbuxunum (notar ekki -skýlu) hans TC, leikfangi yngsta Cliftonsins, bunka af handklæðum sem pressa vel á bókina Days Without Number. Er sjálfsagt uppáhaldsfrændi DO fyrir vikið.

tc


ps. er reyndar búinn að skella mér í lögfræðina.

Nr. 5 | Tony Clifton | 21.08.2003 | 19:39:18 | [+] |

TéCi, þú ert maðurinn til að leysa úr mínu mesta vandamáli hingaðtil: Hvernig sundbuxur fara best við landgröndótta sólstóla og Corona bjór? Tek fram að ég drekk aldrei þennan Coróna bjór með þessu læm sulli í.

Nr. 6 | AlanHudson | 21.08.2003 | 20:06:45 | [+] |

Sennilega er bara einfaldast að skipta um bjórtegund. Cornóna er heldur ekkert spes eftir allt og tæplega brókanna virði.

Nr. 7 | AlanHudson | 21.08.2003 | 20:32:21 | [+] |

PS, meðan ég man, þegar þú klárar giggin í Las Vegas, þá ættirðu endilega að skella þér yfir í einnarstjörnulandið. Ég gæti hjálpað þér að bóna Kádiljákinn!

Nr. 8 | AlanHudson | 21.08.2003 | 20:39:38 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff