Föstudagur, 29. ágúst 2003
Mikki er að mana liðið upp í að æfa box í átta vikur hjá Kúbumeistaranum Oscari sem ég tók einhvern tíma viðtal við. Var mikið að spá í að kýla á það enda farinn að sjá grilla í kassa og sixpack eftir þriggja mánaða sund og EIRform. Gummi er game líka en einkaþjálfarinn minn hann Eiríkur sagði bara: "Nei, Tóti minn. Nei, nei." Þar fyrir utan á ég ekki 15.500 og er ekki alveg að fatta hvernig Oscar ætlar að kenna þetta þar sem tungumálaörðugleikar munu örugglega setja strik í reikninginn.
Hvað um það það yrði nú samt gaman að sjá okkur Fréttablaðsrindlana koma að læra box með einhverjum Hjöltum Úrsusum. Við ákváðum á staðnum að stofna boxklúbb og nefna hann Boxfélag framsóknarmanna og gera það að inntökuskilyrði að menn gangi í flokkinn og fá svo að keppa undir merkjum hans. Okkur fannst þetta voða fyndið. Veit ekki afhverju. Kannski af því það er svo far out að sjá fyrir sér njálga sem hugsa um það eitt að potast að kjötkötlunum skoppa um í ferhyrnda hringnum.
Gummi hefur einhverjar áhyggjur af því að það losi um of mikla uppsafnaða gremju að boxa. Það er auðvitað gott að losa gremju en það gæti orðið hættuleg gusan hjá okkur bækluðu framsóknarbörnunum ef allur framsóknarköggulinn sem við höfum burðast með síðan í æsku kæmi í einni sprengingu.
Jakob nennir ekki að vera með en neitaði því ekki að box yrði mjög aðlaðandi sport ef það fæli í sér að maður fengi loksins að berja framsóknarmenn.
nokkát
| 22:34 |