Föstudagur, 29. ágúst 2003
Óskar Jónasson reyndi ađ setja Bresku bíódagana međ glćsibrag. Ţetta var eiginlega bráđfyndiđ ţar sem hann ţurfti ađ tala viđ undirspil einhvers sándtrakks sem gem gengur í lúppu í salnum fram ađ sýningu myndar. Óskar flaskađi, eins og svo margir ađrir áđur, á ţví ađ beita fyrir sig íróníu ţegar hann reyndi ađ fá sýningarstjórann til ađ lćkka og bađ hann ţví um ađ hćkka ađeins. Tónlistin snarlćkkađi í augnablik og Óskar ćtlađi ađ halda áfram ađ kynna myndirnar en ţá varđ manngarmurinn uppi í sýningarklefa viđ beiđninni og blastađi bíósinfóníuna í botn og Óskar mátti ţví heldur betur brýna raustina.
Óskar ćtti samt ađ vera orđinn öllu vanur í kynningarbransanaum. Ég man ađ hann kynnti Filmundarsýninguna á Citizen Kane á sínum tíma og er alveg viss um ađ ég hef séđ hann áđur kynna einhverja snildina á sviđi Háskólabíós. Kannski er hann sá eini sem gerir ţetta?
Sweet Sixteen eftir Ken Loach var afskaplega góđ en ég nenni ekki ađ skrifa um hana ţar sem Biggi er búinn ađ gera umsögn fyrir Fréttablađiđ. Ég vísa ţví bara á dóm Empire međ íslenskri fyrirsögn sem ćtti ađ vera Góđur drengur í djúpum skít. Frábćr leikur hjá Martin Compston í ađalhlutverkinu. Hann verđur í Niceland Friđriks Ţórs og er víst ađ drekka bjór međ meistaranum úti í Berlín as we speak.
Allar myndirnar á hátíđinni eru áhugaverđar en mađur verđur auđvitađ ađ forgangsrađa og ég ćtla ekki ađ missa af ţessum:
The Magdelene Sisters
Croupier. Ef einhver kann ađ gera breska krimma ţá er ţađ nefnilega Mike Hodges (Get Carter 1971. Hann klúđrađi ađ vísu A Prayer for the Dying glćsilega en fyrirfram hafđi ég gert mér vonir um ađ hún yrđi ein besta mynd Mickey Rourke).
Plots With a View. Viđskiptastríđ milli tveggja útfararstofa í smábć. Svartur, breskur húmor og Hitchcock vísun í titlinum. Getur varla klikkađ.
Bloody Sunday. 30. janúar 1972. Mótmćlaganga í Derry. 13 drepnir. Umtöluđ mynd sem ég er búinn ađ bíđa eftir. Fékk gćsahúđ yfir treilernum. Svo leikur Tim Pigott-Smith í henni. Hann lék skíthćlinn Ronald Merrick svo vel og eftirminnilega í The Jewel in the Crown í Sjónvarpinu fyrir mörgum árum ađ hann gat ekki látiđ sjá sig úti á götu í Bretlandi lengi eftir. Beinlínis hatađur.
Allt ađ gerast í Háskólabíói nćsta hálfa mánuđinn.
| 9:09 |