Sunnudagur, 24. ágúst 2003
Þetta er búið að vera frekar magurt og leiðinlegt sumar. Leiðinlegt að blogga og leiðinlegt á BadaBing! Þetta stendur allt til bóta þar sem ég sé það á kommentunum að hirðin er að vakna til lífsins.
Það er einhvern veginn miklu skemmtilegra að standa í þessu þegar Rebbi, Hudson, Organistinn og Tony leggja orð í belg.
Fékk líka póst frá skuggaráðherra Sjálfstæðisflokksins sjálfum Stebbafr. um daginn. Það þarf auðvitað ekki að fjölyrða um það að hann er hress, hefur meira að segja haft gaman af því að lesa alkavælið hérna og fagnar því að ég sé kominn aftur til starfa.
Skjallabandalagið er þó illu heilli búið að vera alveg úti að skíta. Það er öllu verra en hvernig getur maður kvartað þegar KR sallar Fylki niður og gerir það að formsatriði að halda dollunni á meðan maður liggur rólegur í heitu setlauginni í Vesturbænum og hlustar á þrætur um hvalveiðar. Þetta er yndislegt líf.
Kallarnir í bottinum voru annars helvíti hressir og sögðu að það væri aldrei betar að vera í pottinum en einmitt þegar KR ætti heimaleik, þá væri hann nefnilega ekki jafn drullugur og venjulega.
Ákvað að uppfæra umfjöllun um 28 Days Later í tilefni þess að þessi snilldarmynd er loksins komin á almennar sýningar í bíó. Við Beta erum rosa hress með þetta - enda auðvelt að greina svona stöff í ræmur. Þetta er öllu verra með uppáhaldið mitt hana Angelinu en nýja myndin er að klikka þó gellan sé sjálf í topp formi.
| 22:24 |