Laugardagur, 23. ágúst 2003
Það er alveg lýsandi fyrir það hversu óstöðugur ég er andlega að ég skipti svakalega ört um skjáborðsmyndir á vélinni minni. Þetta er andleg þráhyggja sem ég ræð ekkert við. Lucy Liu og vinkonur hennar stöldruðu við í nokkra daga en Marilyn Monroe hefur verið við völd þessa vikuna. Ég fékk svo aftur Presskit um Tomb Raider í hendurnar í fyrradag en því fylgdi CD með haug af myndum af Angelinu og mér segir svo hugur að hún muni bola gömlu gyðjunni burt fljótlega.
Já, og á meðan ég man. Ingólfur Julíusson hefur aldrei logið nokkrum sköpuðum hlut. Ég tek hér með ummæli mín um annað til baka og bið hlutaðeigandi afsökunar. Þetta var bæði rætið og ósmekklegt.
Lærði að bæta tenglum inn á BadaBing! um daginn og uppfærði listann en á hann kemst sko ekki hver sem er. AA er komið þarna inn af augljósum ástæðum, Fréttirnar hans Denna eru orðnar ómissandi og mér þykir eðlilegt að hafa Kaninkuklanið og Bloggara dauðans með þar sem fáir blogga betur en kommúnistar og vinstri menn. Sýnist ég svo þurfa að troða Blaðamannafélaginu þarna inn í það minnsta ef félagi Jakob heldur áfram að hrista upp í spjallinu þar.
| 15:01 |