Föstudagur, 15. ágúst 2003
Stúlkan sem stelur nammninu mínu sendi mér tölvupóst í gær og það er greinilegt að bati minn er farinn að hafa truflandi áhrif á draumfarir hennar. Gefum henni orðið:
En nú skal ég segja þér - heldurðu að mig hafi ekki dreymt þig í nótt, þú varst í bleikri peysu og ljósbláum gallabuxum og orðinn soldið þéttari og rjóðari í kinnum og varst svona eitthvað svo væminn.
Heldurðaðsé . . .
Vonandi er hún ekki berdreymin en ef þetta er það sem koma skal þá er Boltonbatinn orðinn eftirsóknarverður og ákjósanlegur. Allt annað en bleikt.
Annars er það að frétta af alkanum að ég kláraði meðferðina í dag (allra síðasta alkabloggið mun því birtast á morgun en dyggir lesendur Badabing! geta huggað sig við að eftir það mun gamla kaldhæðnin og skítkastið byrja aftur þó með þeirri undarlegu breytingu að það verður ekki rætið lengur) og mæti ferskur í svörtum palíettukjól á bleiku skýi til vinnu á mánudaginn. Ég er nú ekkert viss um að endurkoma mín vekji neina sérstaka lukku nema þá hjá Steingrími Sævarri Ólafssyni, ritstjóra Frétta.com. Hann er að eipa á Fréttablaðinu fyrir að stela öllum skúbbunum hans um fyrrum vinnufélaga sína á Stöð 2 en Þórarinn Þórarinsson, blaðamaður, hefur ætíð lagt sig fram um að geta Denna og Frétta.com þegar hann hefur fundið sig knúinn til að vitna í kauða.
| 16:41 |