The truth is out there...
Miðvikudagur, 06. ágúst 2003
og þá aðallega í Vesturbæjarlauginni. Þar voru kallarnir í sturtunni að þrasa um Árna Johnsen (hvað annað?) og fannst greinilega geggjað nöldurbréfið sem tónskáldið sendi með þyrlunni til Eyja alveg fyrir neðan allar hellur.
Einhver sýndi því þó skilning að menn gætu orðið spældir ef þeir yrðu settir í fangelsi á meðan annar benti á að Árni væri eins og fangarnir í hinni ágætu bíómynd The Shawshank Redemption en eins og flestir muna töldu allir fangarnir í því ágæta fanglesi sig alsaklausa, fyrir utan Morgan Freeman sem lék eina seka manninn í Shawshank. Ágætis punktur og þessi mannlífsrýnir í sturtunni hefur kannski áttað sig á snertifletir Árna við þessa sögu Stephen Kings eru fleiri en aðalpersónan Andy Dufrense, sem Tim Robbins lék, sat blásaklaus bak við lás og slá og safnaði steinum - rétt eins og Árni sem stal að vísu sínum steinum.
Annars ætlaði ég nú ekki að vera að skrifa meira um kartöflubóndann fingralanga enda sé ég í fljótu bragði að ég hef eytt allt of miklu púðri í hann en hann bjargaði síðasta sumri, skrifaði áramótaskaup fyrir Hallgrím Helgason, komst á bögglistann minn (þarna var ég greinilega ekki í bata) og brilleraði í Kastljósinu.
Árni er eiginlega búinn að vera svo duglegur að skemmta landsmönnum síðustu misserin að það er hreinlega frekja af þessu eyjaliði að heimta að hann fái frí frá fangavist sinni til að klóra gítarstrengi fyrir örlagafyllibyttur í Herjólfsdal. En frekjan í Eyjamönnum hefur auðvitað alltaf verið yfirgengileg og á akureyrískum nótum. Árni sjálfur er svo engu betri eins og þyrlubréfið sannar en þar kemur fram að "menn sem fyrirlíta fólk og gera allt sem þeir geta til þess að gera lífið leiðinlegt" hafi sett steina í götu sína. Einhverjir gætu þó lagt þann skilning í lög, reglur og fanglesi að þeir sem þeir stjórnuðu þeim hefðu það hlutverk að halda aftur af fólki sem hefur gert lítið úr tilverurétti samborgara sinna. Þannig mætti gefa sér að lögunum væri ætlað að auðvelda sómakæru fólki að lifa skemmtielgu lífi í friði fyrir glæpamönnum.
Æi, þetta er tómt kjaftæði og ekki orðum í þetta eyðandi og dr. Gunni er búinn að súmma þetta upp og segja allt sem segja þarf í 2 setningum: "Ef einhver hefur efast um að Árni Jónsson sé fyrirlitlegur vitleysingur hlýtur sá sami að vera hættur því núna eftir þetta subbulega bréf hans við brekkusönginn. Þú ert í FANGELSI fíflið þitt."
Þetta var langur útúrdúr. Skellum okkur aftur út í laug. Samræðurnar í sturtunni voru auðvitað bara upphitum fyrir aðalhasarinn sem var að venju í heita pottinum. Þar afgreiddu spekingarnir Þórólf, Ingibjörgu Sólrúnu, Kolkrabbann, íhaldið og framsókn á innan við kortéri. Mér leið eins og Fox Mulder þegar ég heyrði sannfærandi rök fyrir því að ráðandi öfl stjórnuðu öllu fréttastreymi og fjölmiðlaumfjöllun. Sannleikurinn er einhvers staðar þarna og ég kaupi samsærið. Hvernig má annars verja það að allar stórfréttir sleppa lausar yfir hásumarið þegar þjóðin er upptekin við að grilla og vera full af rauðvíni? Viljalaust almenningsálitið er með 3 vikna minni og þannig er allt gleymt að hausti. Olíusamráðið er óþægilega mál þessa sumars sem týnist í nöldri um siðferði borgarstjórans (fáránlegt þar sem hann var markaðsmaður og hefur því verið hafinn yfir slíkt bull á meðan hann átti að vita um meint svínarí olíufélaganna. Olíufélögin eru nefnilega fyrir löngu komin handan góðs og ills og eru laus undan oki siðmenningar) og hvalveiðidrauminn sem er að rætast. Þetta breytir engu um það að það má vera ljóst að svínaríið hafi verið á vitorði manna á æðstu stöðum fyrir kosningar, rétt eins og draumurinn um að vera með dáta sem varð að engu áður en almúginn flykktist að kjörkössunum.
Jamm. Þetta er ljótt og einhvers staðar í skugganum leynist hrukkudýr sem reykir Morley´s og stjórnar þessu öllu. Ég sagði ekki neitt og stakk hausnum í kaf enda voru pottormarnir búnir að garga það yfir allt að blaðamenn kynnu ekki að spyrja spurninga.
| 22:02 |