Fimmtudagur, 28. ágúst 2003
Fór á Sweet Sixteen, opnunarmynd Breskra bíódaga, áðan. Frír bjór auðvitað og þetta var því fyrsta skiptið sem ég feisa ókeypis áfengi eftir að ég kláraði meðferðina.
Fyllibyttuyfirbragðið er líklega ekki alveg farið þar sem stelpan á barnum var búin að opna flöskuna mína þegar ég átti enn dágóðan spöl eftir að borðinu.
Tókst samt að segja "nei, takk." Það var ekkert svakalega erfitt og ekki get ég sagt að ég hafi fundið fyrir yfirþyrmandi löngun, en ég ætla heldur ekki að neita því að ég fann fyrir nokkrum óróleika framan af myndinni.
Ég er semsagt að kynnast því hvernig er að vera óvirkur alki í þessu fokkings neyslusamfélagi en það var auðvitað ekki boðið upp á neitt óáfengt.
Poetic justice. Hvað ætli ég sé búinn að hlæja að mörgum svona kvikindum í gegnum árin sem væla yfir því að það sé aldrei óáfengt á borðum og þurfa að sérpanta súpur hjá Sigga Hall af því að það má ekki vera kampavín í þeim? The Emperor had not forseen this!
Ég er þreyttur en er að spá í að vaka eftir endursýningunni á Kastljósinu. Sá að félagi Hafliði var þar þegar ég rauk út í bíó áðan. Hlýtur að hafa verið að tala um Kolkrabbann. Það er gott að hafa Hafliða innan seilingar þegar sjávarkvikindi í viðskiptalífinu eru að deyja.
| 23:47 |