Sunnudagur, 24. ágúst 2003
Það hlýtur að vera geggjuð stemning uppi á Stöð 2 þessa dagana þar sem stjórnendur leita logandi ljósi að klöguskjóðunni sem lak því í Fréttir.com að laxveiðifrétt aldarinnar hefði verið skotin niður.
Mér skilst að einhverjir töffarar liggi frekar undir grun en aðrir enda hlýtur það að vera deginum ljósara að aðaltöffarinn hefur lekið. Þetta gefur minni töffurunum á fréttastofunni þó kjörið tækifæri til þess að spila sig kúl. Þeir gætu nefnilega gert eins og í Spartacus en þegar Rómverjarnir komu að sækja Kirk Douglas stóðu allir skylmingaþrælarnir upp, einn af öðrum, og sögðust vera þessi eftirlýsti Spartacus.
Nú verða bara allir fréttaþrælarnir að standa upp og segja "ég gerði´ða". Það yrði gaman að sjá hvernig Sigurður G. , sem ég fíla í tætlur by the way, tæklar það. Hann er auðvitað alvöru og myndi örugglega moka öllu liðinu út.