Sunnudagur, 14. september 2003
Orðið kynvillingur er eitt gildishlaðnasta orð íslenskrar tungu og konótasjónirnar eru svo pólitískt rangtþenkjandi og neikvæðar að það leggur sér varla nokkur maður þetta annars áferðarfallega orð til munns lengur - nema klikkhausar sem vilja tala niður til samkynhneigðra af geggjaðri fyrirlitningu.
Ég held að vísu að þeir hinir sömu ættu einmitt að nota þetta orð meira þar sem það segir miklu meira um þankagang þeirra en nokkurn tíma blásaklausa homma og lesbíur sem vilja fá að vera samkynhneigð í friði án þess að það þurfi að gera það sjálfkrafa að verkum að þau séu á einhverjum geðveikum villigötum í kynlífinu.
Nýja Orðabókin hans Marðar segir:
kyn-villa KVK 1 (niðrandi) samkynhneigð, kynhvörf
2 gera kynvillu falsa ættarrakningu með því að rangfeðra barn 3 mál/bragfr., slangur, reik nafnorða milli málfræðikynja
kyn-villingur KK (niðrandi) samkynhneigður maður (yfirleitt karl)
kyn-villtur L (niðrandi) samkynhneigður, kynhverfur
Orðið sem slíkt er kannski ekkert endilega svo slæmt en þó er líklega heppilegra að nota það um orð frekar en fólk samkvæmt þessu. Orðið kynvillingur hefur færst meira út á jaðarinn eftir því sem réttindabarátta samkynhneigðra og kredduundanhald hefur fært homma og lessur nær miðjunni. Mig minnir að orðið hafi á sínum tíma þótt dæmi um það hversu íslenskan er kúl mál sem getur orðað alla skapaða hluti með samsettum orðum. Mogginn hefur því sjálfsagt geta notað orðið kynvillingur fyrir 20 árum en vill ekki nota það á 21. öldinni frekar en Jesú , dömubindi og sokkabuxur í fyrirsögnum.
Snillingunum á Mogganum tókst nú samt að birta eitt sýrðasta lesendabréf ever á föstudaginn en þar lét hinn biblíulega kynvísi Einar Ingvi Magnússon öllum illum látum og hamaðist á samkynhneigðum með slíku orðavali að unun var að lesa. Þó maður sé ekki sammála fríkinu var ekki hægt annað en að hlæja að bullinu.
Við Jakob sáum í höndum okkar að Mogginn væri sennilega búinn að starta borgarastyrjöld með því að birta óskapnaðinn en við höfum stundum diskúterað þetta orð, kynvillingur, við Hafliða Kolkrabbabana á morgunfundum. Við höfum samt aldrei komist að niðurstöðu þar sem við rekum okkur alltaf á það að þetta er debatt sem ekki er hægt að taka fyrir hádegi.
Mogginn er búinn að segja sorrý en situr þó uppi með skömmina. Þetta getur ekki hafa komist á síður blaðsins nema nazisti haldi utan um lesendasíðuna eða hreinlega að það lesi enginn aðsent efni yfir heldur sé því bara dælt hugsunarlaust inn á síður blaðs allra landsmanna. Sé það tilfellið þarf maður ekki að hugsa þá hugsun til enda hvernig blaðið meðhöndlar einhliða fréttatilkynningar og áróður sem rignir inn á ritstjórnir og fréttastofur á hverjum degi.
Æi, hvað er ég að röfla þetta. Það má segja svakalega margt um birtingu Moggans á lesendabréfinu og orðið kynvillingur en það er debatt sem einhverjir aðrir verða að taka og hafa nú þegar gert. Ég varð bara að segja eitthvað áður en ég slengdi Svívirðunni í Úrklippurnar sem nýjasta gullmolanum. Minni um leið á annað Moggafíaskó.
| 21:50 |