»  off record  »  Börn næturinnar
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Börn næturinnar
Laugardagur, 13. september 2003

wed1.gifOrganistinn hefur verið að kvarta yfir því að ég sé orðinn "gjörsamlega bitlaus penni" og rekur þessa geldingu mína eðlilega beint til áfengismeðferðarinnar. Ég ætla því að ganga endanlega fram af honum og blogga um börnin mín, sem eru bæði upprennandi snillingar eins og þau eiga kyn til.

Doddi sýndi mér, um daginn, hróðugur mynd sem hann teiknaði af vampíru. Kvikindið var allt hið ógeðslegasta, einhvers konar ormur með rosalega hvassar vígtennur. Myndinni fylgdi svo innblásinn fyrirlestur frá fimm ára barninu um tanngerð blóðsugna og blóðdrykkju almennt.
Það þarf auðvitað ekki að fjölyrða um hversu pabbinn var stoltur af syni sínum.
Jóhanna var enn fyrri til enda hefur hún verið e.k. real life Wednesday Addams frá því ég man eftir henni.
Hún var fjögurra ára þegar hún spurði mig upp úr þurru hvernig best væri að drepa vampírur. Ég sagði henni að það væri viðtekin venja að reka fleyg í gegnum hjartað á þeim. Það ætti að duga. Hún horfði á mig, full efasemda, og spurði svo: "Er ekki öruggara að skera líka af þeim hausinn og kveikja í þeim?"
Þessar hugmyndir hennar smellpössuðu við það sem frumstætt fólk í eldgamladaga gerði við lík af fólki sem það grunaði að væru undead og myndu bíta fólk í hálsinn og drekka úr þeim allt blóð.
Ég var að lesa Vampyres Lord Byron to Count Dracula um þetta leyti, enda á kafi í hryllingi hjá Guðna Elíssyni í bókmenntafræðinni og mig minnir endilega að þessi aðferð hafi verið notuð bæði í Ungverjalandi og Kína.
Ég var auðvitað sannfærður um að dóttir mín væri lifandi sönnun þess að vampíruóttinn og hvernig bregðast skal við honum sé eitthvað sem hafi, í gegnum aldirnar, stimplað sig inn í kollektívt minni mannkynsins.
Það þarf auðvitað ekki að fjölyrða um hversu pabbinn var stoltur af dóttur sinni. Nú er hún ellefu ára og er að stauta sig í gegnum Dracula eftir Stoker og heldur að sjálfsögðu með greifanum gegn Van Helsing þó hún fíli Minu Harker sem við vorum einmitt að horfa á í dag í League of Extraordinary Gentlemen.

Muna: Helvítis moðpokinn


| 23:36 |
komment

Það er engin ástæða til að taka organistann alvarlega þessa dagana. Hann er ekki í jafnvægi eftir meðferðina hjá DrCronex.

Nr. 1 | AlanHudson | 13.09.2003 | 23:48:08 | [+] |

Tóts; maður er svo laminn á þessu blaði að það gefst ekki tími til að líta upp þegar litlir skemmtilegir krakkar koma í heimsókn. Missti því alfarið af Dodda og þykir það leitt; eins mikil barnagæla ég er og hef gaman af að spjalla við börn og fá þessi líka yndislegu svör.
Þú verður að bjóða honum aftur í vinnuna og ég svíkst um á meðan ég skoða barnið og stofna til kynna.
Mamms

Nr. 2 | sils | 14.09.2003 | 2:52:13 | [+] |

Tóti:

Þú gengur alls ekki fram af mér með þessu bloggi; það er eitt það besta í langan tíma. Krakkarnir eru kjút og allt í fínasta lagi fyrir þau að vera aspírerandi blóðsugur. Svo framarlega sem þau hafa ekki ánægju af því að pynta dýr eins og Totil hefur sögu um. Slíkt er mjög hættulegt merki eins og maður sér á blogginu hans Totil. Ánægja af dýrapyntingum í æsku mun vera algeng saga hjá þeim sem enda á death row hér í BNA. Upprennandi vampírur ná hins vegar langt.

Alan:

Dr. Cronex er góður en ég held að í þessu tilfelli hafi hann verið sjúklingurinn en ekki Organistinn. Eruð þið nágrannar? B.t.w. hvað varð um Thornsteen?

Nr. 3 | Organistinn | 14.09.2003 | 3:36:56 | [+] |

Nei, ég held einhvernveginn að Cronexinn sé á austurströndinni. Kannski Chicago.

Sagan segir að Thornsteen hafi flutt frá Ísafirði og eitthvað til Evrópu. Sel það ekki dýrara en ég keypti, TC getur frætt okkur nánar um það. Á milli þeirra liggur þráður held ég.

Tóti: Ég held að börnin þín séu mannskjurnar sem geta hjálpað Hudson hjónunum út úr miklum vanda. Þannig er að í næsta garði er sundlaug sem helst er ekki notuð nema eftir miðnættið af túrbanklæddum indverjum. Það má skjóta því hér inn að þeir synda með túrbanana, það má víst ekki taka þetta niður að viðurlögðum höfuðmissi. En þessar ótímabæru íþróttaiðkanir eru hvimleiðar. Við höfum aðeins rætt að hringja í lögguna, en frúin hefur horft á of margar episódur af Cops, og hryllir við ríkisreknum fjöldamorðum í fína hverfinu okkar, og að það lendi huxanlega í þessum virtu þáttum.
Heldurðu að börnin þín lumi ekki á góðri lausn fyrir okkur? Eitthvað svona saklaust eins og börn ein geta látið sér detta í hug, og dugar til að fá þessum sundferðum hætt? Eitthvað eins og afskornir hrosshausar, dauðar kýr á floti eða hvað það gæti nú verið? Dagskrá síðasta flokksþings Framsóknarflokksins? Okkur er eiginlega alveg sama, bara að það hrífi.

Því má svo bæta við að þetta er ákaflega góð laug fyrir byrjendur í brimbrettabruni.

Nr. 4 | AlanHudson | 14.09.2003 | 3:56:30 | [+] |

Alan:

Besta take on Cops sem ég veit um er Beavis and Butthead þáttur þar sem þeir eru að glápa á sjónvarpið að vanda og eru að horfa á Cops. Svo fara þeir að kommentera að þeir kannist við þetta hverfi og húsið sem löggan er búin að umkringja, og þá um leið brýst löggan inn hjá þeim til að handtaka þá.

Mér vitanlega hefur íslendingi ekki enn tekist að komast í Cops. Þú ættir að reyna.

Nr. 5 | organistinn | 14.09.2003 | 18:57:57 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff