Miðvikudagur, 24. september 2003
Ég tók eftir því að Sverrir Jakobsson rétt slapp við Bessastaðatilnefningu í Fréttablaðinu um daginn og þakkaði sínum sæla fyrir að Salvör skyldi ekki hafa nefnt sig við "ofurblaðamann Fréttablaðsins".
Þar sem Sverri bar ekkert á góma í spjalli mínu við Salvöru taldi ég víst að hann væri ekki með mig í huga, heldur ofurblaðamanninn (ég er enn að festa mig í sessi sem stjörnublaðamaður þannig að það er langt í ofurmennið) sem tók forsetafeaturinn saman.
Sá svo hjá Salvöru að þar er sjálfur ég að dragast inn í forsetakrísu þeirra Sverris.
Það er rétt að ég talaði við Salvöru og hefði því hugsanlega borið einhverja ábyrgð ef hún hefði átt mynd af Ármanni og hefði orðað hann (Sverri) við Bessastaði. En bara til að fyrirbyggja allan misskilning þá takmarkaðist mitt framlag til greinarinnar, sem Jakob skrifaði, við tvö símtöl; til Salvarar og annars sem kaus að segja pass.
Þetta eru fúlir dagar og maður heyrir meira off record en on. Maður má ekki einu sinni fá sér kaffibolla úti í bæ þá vinda sér að manni menn og segja manni frá fyrirhugaðri sölu á nafntoguðu fjölmiðlafyrirtæki. Bíð í tvo daga og ef ekkert gerist hjá Denna þá skúbba ég þessu.
| 0:14 |