Sunnudagur, 21. september 2003
Var að hlunkast í gegnum þessa ömurlegu The Recruit sem var eyrnamerkt Framsóknarflokknum þegar hún var sýnd í kvikmyndahúsum kortéri fyrir kosningar. Þvílíkt krapp.
Mér leiðist þessi Colin Farrell alveg ósegjanlega. Hann var o.k. í Minority Report þar sem Sydow gamli drap hann, en glataður í Phone Booth, fyrrnefndri The Recruit og ég var ekki að fíla hann í Daredevil en það voru að vísu allir (- Garner) svo morknir að Farrell slapp fyrir horn sem Bullseye. Sem sagt leiðindagaur sem er kominn allt of langt, ekki ósvipað Tom Cruise og Brad Pitt sem eru báðir hreinn viðbjóður.
Persóna Farrells í The Recruit er fædd 1976 (rétt eins og leikarinn sjálfur) og er því nokkuð yngri en ég sjálfur. Aldurinn hefur svo sem aldrei böggað mig neitt en það er eitthvað niðurdrepandi við það að vera stöðugt að reka sig á það að aðalpersónurnar í bíó eru orðnar yngri en maður sjálfur. Farrell er til dæmis þarna toppstúdent frá MIT og er ráðinn til starfa hjá CIA, af því bara og vegna þess hversu hann er klár. Aðeins 27 ára.
Ég er 32 og er ekki enn búinn með bókmenntafræðina og er blaðamaður hjá Fréttablaðinu og það hefur enginn frá Washington Post eða Empire boðið mér djobb. Það er eitthvað bogið við þetta allt saman.
Gneistinn sendi frá sér fréttatilkynningu um vefverðlaunin sín um helgina. Alls ekki svo galið hjá honum þó það megi svo sem draga átorítet hans í efa sem gúrú á þessu sviði en hann er varla vitlausari en Óskarsakademían, Eddugengið eða Vefsýnarliðið sem hafði rænu á að útnefna Strikið besta vefsetrið á meðan ég var að vinna þar. Síðan þá hefur farið lítið fyrir Strikinu og enn minna fyrir vefsýnarverðlaununum.
| 23:08 |