»  off record  »  Endalaus væll
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Endalaus væll
Sunnudagur, 28. september 2003

Einhver kelling með fyrirtíðarspennu er að væla yfir vefverðlaunagreininni. Merkilegt hvað þetta blogghyski er upp til hópa sjálfhverft og sensitíft. Það var enginn ritskoðun í gangi og ég lét fagurfræðilegar ástæður ráða því hvaða verðlaunahafar voru taldir upp. Helgi var heldur ekki rassgat ritskoðaður eða mildaður. Ég fylgdist með því. Hins vegar hefði spjall okkar hæglega getað teygt sig yfir opnu en það var ekki planað þannig. Spurning um að ég birti upptökuna hérna svo það fari nú örugglega ekkert til spillis.


| 22:40 |
komment

Fagurfræðin já :p

Má sumsé telja það að þú sem fréttamaður birti ekki það sem þér finnst fagurfræðilega ekki nógu flott þó svo að það séu jafngildar staðreyndir og aðrar.

Skot í fótinn.

Nr. 1 | JBJ | 28.09.2003 | 23:25:31 | [+] |

Tóti minn!

Hvað ertu að æsa þig yfir þessum pappakassa? Síðhvörf?

Kveðja,
Jakob

Nr. 2 | Jakob | 28.09.2003 | 23:53:36 | [+] |

ps. eða kannski... sýklarnir?

Nr. 3 | Jakob | 29.09.2003 | 0:05:17 | [+] |

Vá í hvaða steypu datt ég í hérna. Kratar og kommar?

Hvaðan eruð þið? Launsynir Björns Bjarna sem sér ennþá krata og komma hvar sem litið er?

Hvaðan Mulder kom veit ég ekki heldur né skil ég innanbúðargrínið um pappakassa sem er vafalaust skondið þekki maður til.

Ég var góðlátlega að höggva eftir því hvernig fagurfræðileg mælistika Tóta er og hvaða áhrif það hefur *almennt* (alls óskylt einhverjum lista Óla Gneista) á störf hans sem fréttamanns, hann á greinilega bágt með það og þykir mér það miður að æsa grey kallinn upp.

Upptakan frá Helga væri hins vegar sniðugt framlag.

Nr. 4 | JBJ | 29.09.2003 | 11:32:47 | [+] |

Hér þarf einhver að taka sig á í náminu. Eða kláminu.

Nr. 5 | pallih | 29.09.2003 | 13:49:06 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff