Mánudagur, 29. september 2003
Framkvæmdastjóri BadaBing! í New Jersey lýsti því yfir á dögunum, ekki ósvipað og staðhaldarinn hér í Reykjavík, að hann væri hættur að drekka. Hann hefur sennilega klikkað á sporavinnunni, eins og félagi hans á Íslandi, þar sem fréttir herma að það hafi sést til hans sturta í sig vodkaskotum á Suede í New York. Með honum á sukkinu voru Jamie Lynn Sigler, sem leikur dóttur Tonys í Sópranós, og eiginmaður hennar en það skiptir engu hvað hann heitir.
Gandolfini komst í gott stuð og dansaði á bekkjum, ekki ósvipað og umoðsmaður hans hérlendis átti til að gera á góðum dögum. Hann hefur gengist við því að hafa farið í meðferð, eins og sumir, fullyrt að sukkdagar hans séu að baki og hann ætli að vera edrú framvegis. Talsmaður hans segir hann aðeins hafa verið að skemmta sér með vinnufélaga og að því er hann best veit hafi hetjan verið edrú. Þessari afneitun er hafnað í fréttinni með þessu skítkasti: While folks familiar with the 12 steps of Alcoholics Anonymous wouldn't buy this excuse if it was served in a high-ball glass..."
Lesandi sem ekki vill láta nafn síns getið sendi mér þessa frétt með orðsendingunni: Ef hann má, þá mátt þú líka! Mikið til í þessu.
Þetta er í það minnsta spurning um að hætta sundinu. Missti úr alla síðustu viku en léttist samt um 1 kíló og er nú 63,5. Draumurinn um 70 kílóin verður alltaf fjarlægari. Það er líka orðið svo fjandi kalt að það er fullkomlega ólógískt að vera að sprangja um hálfnakinn í þessum fokkings næðingi. Annars fullyrðir EIR, einkaþjálfari, að þetta verði bara betra og hápunkturinn komi í febrúar þegar maður þarf að vaða skaflana að heitu setlauginni. Þegar þangað er komið setur maður hausinn í kaf og það snöggfrýs á manni hárið þegar manni skýtur aftur upp. Það er víst magnað.
| 22:17 |