Mánudagur, 08. september 2003
Þessi raunveruleikasjónvarpshugmynd þeirra á Skjá tveimur er búin að vera að æra óstöðuga í allan dag. Ég fletti upp leitarorðinu "raunveruleikasjónvarp" hér á BadaBing! og sá strax að mér hefur greinilega verið í nöp við fyrirbærið býsna lengi þannig að það er kannski ekki að marka neitt þó mér finnist þetta smekklaust, þó mér hafi nú ekki verið neitt heilagt áður en ég fann Guð í edrúmennskunni.
Bjó til tvær fyrirsagnir um þetta uppátæki. Mér finnst þær góðar þó þær séu ekki gjaldgengar í Mogganum en þar má heldur ekki nota orðin sokkabuxur og Jesú í fyrirsögn hvorki saman né aðskilin.
Íslenskar frístundahórur í Las Vegas
Rjóminn af Djúpu lauginni til Vegas
Ég er svo heppinn að vera að vinna með Íslandsmeistara, gott ef ekki Heimsmeistara, í fyrirsögnum en bar þetta samt ekki undir hann. Sá snillingur á hins vegar setningu dagsins. Djúpvitur og pæld eins og allt sem frá honum kemur:
Þetta væri góður dagur ef maður væri ekki á Yaris
Ég er líklega sá menningarsnauðasti í hinu magna fjóreyki og helgarblaðs S.W.A.T. teymi þar sem ég er offissíallí froðusnakkur blaðsins, þ.e. sá sem leggur til innihaldslausa ruslið sem er auðvitað drekkhlaðið merkingu ef vel er að gáð. Það froðubað sem ég hef legið í síðustu þrjá áratugina er þó illu heilli drullueinhæft og ég þigg því allar ábendingar um áhugaverða froðu hér á kommentunum. Hvet femínista sérstaklega til að liðsinna mér í baráttunni.
JEEEEEEEEIIIIIIIIIIIIII það kemur mynd með Mickey Rourke í bíó á föstudaginn. Slíkt hefur ekki gerst í háa herrans tíð. Hann var mikið uppáhalds og gæti orðið það aftur. Rodriguez hlýtur að geta lappað eitthvað upp á hann og nú þarf Tarantino bara að taka sig til og tjasla ferlinum hjá gamla boxaranum saman. Frumsýning Once Upon a Time in Mexico gefur mér þó í að minnsta ærið tilefni til að skrifa langa grein um hetjuna hér á BadaBing!
| 21:55 |