Þriðjudagur, 02. september 2003
Teljaragræja BadaBing! hrundi í febrúar og síðan þá hef ég ekki haft glóru um fjölda heimsókna, hvað er mest lesið og hvort síðan sé yfir höfuð lesin. Þetta er allt að skírast núna. Það stefndi í að febrúar yrði metmánuður en aðsóknin hafði verið að vaxa stöðugt á milli mánaða þegar vélin krassaði. Sumarið var greinilega magurt í meira lagi og aðsóknin fyrir neðan allar hellur. Ég geri ráð fyrir því að það sé svona leiðinlegt að lesa um brennivínsmeðferðir og var líka búinn að ákveða að ekkert væri jafn óspennandi og blogg óvirks alkóhólista sem er uppálagt að vera æðrulaus, heiðarlegur og laus við rætni og hroka og var því búinn að ákveð að loka sjoppunni.
Þá kemur á daginn að á 18 dögum í ágúst skaust sá mánuður langt upp fyrir febrúar og þó aðsóknin sé enn töluvert minni en hjá Önnu blæs þetta manni kapp í kinn og ég ætla að halda áfram að keppa við hana.
Lesturinn á fjölmiðlapistlunum og bíódómunum er hruninn eftir að þetta stöff hvarf af forsíðunni og ég er hundfúll með það og vek athygli á því að þetta eru yfirleitt extended versions; lengri og grófari en það sem birtist í Fréttablaðinu. So read it you idiots.
Það sem er áhugaverðast í teljaraskýrslunum eru svo leitarstrengirnir sem draga fólk inn á BadaBing! af leitarvélum. Hér eru nokkur dæmi í réttri röð miðað við fjölda hitsa. Skil ekki alveg að Ogvodafone sé að toppa klám og Angelinu.
31. ágúst:
ogvodafon
vodafon
klám
breskir bíódagar
og vodafon
frettir.com
hommi
\Angelina\
grín
nektardans
thehun.com
angelina jolie
klám.is
lara croft
stjörnuspá
Gemsar
Harry Potter
Martin Compston
1. september:
Gay big cock
klám
breskir kvikmyndadagar
klam
og vodafon
ogvodafon
sverir stormsker
tenntur
Michael Jackson
Pan-hópurinn
Popptíví
Siggi Kári ÁTVR
Stefán Pálsson bloggari
Sölumaður deyr
Trúnaðarmál
Tvíhöfði
| 9:56 |