Laugardagur, 20. september 2003
Maður er búinn að halda með KR í gegnum súrt, sætt og áratuga titlaleysi án þess að hvika í trúnni en eftir daginn í dag er ég farinn að efast. 7:0 á móti Hafnfirðingum, comon for Christ´s sake?
Talandi um Hafnfirðinga þá stóð hann Jakob sig auðvitað eins og hetja í Popppunkti. Ég hélt með honum þó hann sé FH-ingur.
Dórið var að fá nýjasta heftið af MAD í hendurnar og þar er víst gert stóplagrín að einum lélegasta og ófyndnasta gamanleikara allra tíma, sjálfum John Ritter. Það vill svo skemmtilega til að hann er ný dauður. Þetta er geggjað og deffinetlý eitthvað sem séð og heyrt ætti að skoða: Við dissum dauða til að gera lífið skemmtilegra fyrir okkur hin!