Mánudagur, 15. september 2003
Ekki veit ég hvort er ömurlegra J.Lo eða Ben Affleck en mikið vona ég innilega að þau séu hætt saman fyrir fullt og allt. Mér er að vísu skítsama um þau en þetta breik up gerir vonandi út um öll áform þeirra um að endurgera Casablanca.
Ég gat sætt mig við að Robert Redford hafi troðið sér í Bogart stellingarnar í Havana og lifði það líka af þegar Pamela Anderson tók að sér Bogart hlutverkið í Barb Wire. Þá er ég líka endanlega búinn að sætta mig við að Mickey Rourke er búinn að vera eins og kemur fram í Once Upon a Time in Mexico umfjölluninni. Báðir uppáhaldsleikararnir mínir eru sem sagt jafn dauðir fyrir mér.
En Ben Affleck í hlutverki Ricks Blaine? Það hefði riðið mér að fullu.
Náði líka að sjá The League um helgina og hún vara bara allt í lagi svo lengi sem maður gat horft fram hjá því að hún hefði getað verið últrakúl ef menn hefðu haldið rétt á spöðunum og farið eftir teiknimyndasögu Alans Moore. En það verður ekki á allt kosið.
Speki úr The League:
If you can't do it with one bullet, don't do it at all. (Alan Quatermain við leiðinlegan Ameríkana)
You're sweet, and you're young; neither are traits that I hold in high regard. (Mina Harker við leiðinlegan Ameríkana)
Oh, I saw...Very American. Fire enough bullets and hope they hit the target! (Alan Quatermain við Geroge W. Bush)
Já, Lér meiðist og ég nenneggi...
að glápa á Alias
að glápa á Sópranós
að lesa
að reykja
að fara í bað
og ég er hættur að drekka
spurning um að segja upp með sjálfsmorði?
| 22:52 |