»  off record  »  Hausverkur
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Hausverkur
Fimmtudagur, 25. september 2003

Ég hef rakið krónískan hausverk síðustu daga til reykinga. spurning um að hætta eða höggva af sér hausinn.

Hvaða markaðsfífl ætli hafi fattað upp á því að auglýsa forrit gegn pop-up gluggum með pop-up gluggum?

Fólk, sem hefur hlaupið grenjandi í skjól í allt sumar þegar geitunngi hefur brugðið fyrir, hefur skyndilega öðlast hugrekki og er byrjað að myrða flugurnar af miklum móð. Þær eru að vísu orðnar svo slappar að þær takast varla á loft og ganga lúnar um gólf. Þetta er svolítið eins og Hjalti Úrsus færi að veitast að fötluðum.

Ég hata Flash vefi af persónulegum ástæðum.


| 22:07 |
komment

"Hvaða markaðsfífl ætli hafi fattað upp á því að auglýsa forrit gegn pop-up gluggum með pop-up gluggum?"

Auðvitað snillingur. Með þessu nær hann til þeirra sem ekki eru komnir með poppupp-vörn og með poppuppi sínu pirrar hann fólk nógu mikið til að það vilji kaupa svona vörn.

Nr. 1 | birgir.com | 25.09.2003 | 23:40:36 | [+] |

Hvurslags fordómar eru þetta! Þótt sjálfur hafi ég megna andúð á markaðshyggjunni, sem ég tel þynna út allt í menningu vorri, þá get ég auðveldlega viðurkennt snilldina á bakvið það geta með einföldum hætti náð til nákvæmlega þess hóps sem til stendur og gera hann um leið móttækilegan fyrir því sem selja á.

Nr. 2 | birgir.com | 26.09.2003 | 12:44:05 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff