»  off record  »  Inferno
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Inferno
Mánudagur, 01. september 2003

Ég þurfti tilneyddur að fara í IKEA á sunnudaginn. Þessi verslun er án efa versti staður í heimi og ég kalla hana yfirleitt aldrei annað en fimmta hring vítis. Skelfilegt að vera þarna innan um fordæmdar sálir að skoða sænsk húsgögn. Biðraðirnar við kassana eru endalausar og ekkert mjakast enda virðist takmarkið ekki vera að komast áfram og út úr búðinni, heldur þvert á móti að dveljast þar sem lengst. Það er æfing í æðruleysi að fara í IKEA og ég er ekki það langt kominn að mér sé óhætt þar aftur næstu árin. Víti á jörð það er engin spurning og þessi nýi þykki IKEA bæklingur er örugglega Satansbiblían í dulargevi.

Dead Celebrity´s Society

Það hefur eitthvað verið fjallað um það að um mánaðarmótin ágúst/september árið 1997, nánar tiltekið þann 30. ágúst hafi heimsbyggðin frétt af sviplegu fráfalli Díönu prinsessu.
Fólk hefur verið að rembast við að rifja upp hvar það var statt þegar það heyrði af andlátinu. Ég man hvar ég var. Sjálfsagt var ég, líkt og bílstjóri Díönu, draugfullur þegar slysið varð og ég var vakinn í þynnkunni með andlátsfréttinni.

Ég man þetta aðallega þar sem ég var að drekka með sama fólki þegar Michael Hutchence hengdi sig og þegar Falco (blessuð sé minning hans) dó í mótorhjólaslysinu. Við drápum eitthvað fleira frægt fólk með þessum samdrykkjum okkar. Man bara ómögulega hverjir það voru en okkur þótti það skemmtilega morbid að einhver frægur skyldi geispa golunni í hvert skipti sem þessi klíka dattíða og við nefndum okkur því Dead Celebrity´s Society. Það kom þó loks að því að þetta hitti to close to home og þá fengum við móral og leystum gengið upp. But still those were the days my friend... Já, og fræga fólkið getur auðvitað byrjað að anda léttar þar sem ég er óvirkur og reunion verður því varla banvænt.


| 21:29 |
komment

Mínir bestu vinir hafa fundið hamingjuna í þessari verslunarkeðju út um allan heim; mun ódýrari kostur en sálfræðingar, að maður tali nú ekki um opnunartímann líka.

Þú færð fínan hægindastól eða leðurklætt skammel fyrir hálfa sessjón hjá Sála!

tc

Nr. 1 | Tony Clifton | 6.09.2003 | 7:34:41 | [+] |

Nú, IKEA er svona búð sem maður bæði hatar og elskar, en heimsækir samt. IKEA spilar á goðsögnina um góða lífið sem alla dreymir daglega um. Annars ótrúlegt hvað fólk fyrirgefur IKEA mikið. Það vantar alltaf eina skrúfu í flatapakkann og skáphurðin sem þeir lofuðu að kæmi í síðustu viku hef ég ekki séð neitt til enn. Allt er þetta hannað af sænska pedagoginum hans Tony, leiðbeiningarnar settar í kerfi sem virkar. Jú, jú mikil ósköp, en stíllinn er dálítið þreytandi til lengdar. Ekkert óvænt, ekkert nýtt..

Nr. 2 | Refurinn Loki | 8.09.2003 | 19:36:26 | [+] |

IKEA er reyndar tvíeggja sverð. Það fer um mann ögrandi vellíðan þegar gengið er um slíka búð þar sem hægt er að fá allt undir einu þaki. Hægt að lappa upp á vankanta sálarinnar og lífsins með kreditkortinu.

Vandræðin hefjast þegar heim er komið.

Skiptiborð Cliftonana er dýrasta mubla heimilisins. Mælt í vinnutíma. Það vantaði ekki eina einustu skrúfu eða trépinna. Ónei.

En mikið andskoti var mikið af þessu. Tók TC heila helgi að lemja garminn saman. Heildarkostnaður á við massívan eikarskáp úr Smálöndunum hans Loka anno 1873. En erfiðið skiptir engu máli. Þetta var hamingjunnar virði.

Eða eins og einhver mætur maður orti:

Lykken er ikke det værste du har
om lidt er kaffen klar.

Nr. 3 | Tony Clifton | 8.09.2003 | 21:26:04 | [+] |

IKEAútstillingar á heimilum fólks lýsir andlegri fátækt. Sjáið bara prófessor Hannes Hólmstein, IKEAviðskiptavin nr.1 á Íslandi.

Hudsonhjónin trúa ekki að Cliftonhjónin séu í hópi með prófessornum.

Þau eru það að vísu sjálf, en það er auðvitað ekki að marka.

Nr. 4 | AlanHudson | 8.09.2003 | 21:58:01 | [+] |

Nú, IKEA er er ágætis umræðuefni á borð við veðrið, það er hægt að ræða fyrirbærið við alla, þvi allir hafa einhverja skoðun á IKEA. IKEA er líka nokkurs konar terapia fyrir fólk á miðjum aldri. Menn droppa sála og blaða í kataloginum í staðinn. Þegar valið stendur á milli kynlífs og IKEA, veljur fólk IKEA.

Nú er ekki öll hönnun í IKEA slæm, af og frá. Kannski ekki Philippe Starck í gegn, en IKEA græðir á að spara í efniskostnaði, þannig að gæðin eru lakari.

Nr. 5 | Refurinn Loki | 9.09.2003 | 5:57:40 | [+] |

Hér er IKEA nánast eini staðurinn þar sem hægt er að fá sér sænskar kjötbollur. Organistinn hefur því stundum komið við í IKEA til að borða kjötbollur og sultu þegar hann brunar niður I-5 eða I-405. Svo er líka hægt að kaupa tvíbökur.

Annars er merkilegt að IKEA er sú búð hér í Suður Kaliforníu þar sem hægt er að sjá stærsta samansafnið af hvítu rusli. Hannes Hólmsteinn í hvítum tanktop með bumbuna útí loftið myndi sóma sér vel.

Nr. 6 | organistinn | 9.09.2003 | 6:23:37 | [+] |

Jú jú, mikið rétt, sjoppan leysir Dr. Phil af hólmi, og ekki laust við það að á góðum degi verði maður kynferðislega uppstemdur af því að blaða í katalóknum. Að maður tali ekki um að ganga um búðina og snerta á hlutunum.

Hættulegt umræðuefni í vinnutímanum!

Maður þarf ekki einu sinni að hugsa. Bara halda sig fyrir innan rauðu línuna og elta pílurnar. Hef þó aldrei beygt til vinstri að hætti Organistans þar sem sænskar sjöttbollar bíða í spenvolgri brúnsósu frá Knorr eða Bláa borðanum.

Hvað segir Loki annars; er það Ikea eða loðnar þýskar ferðakonur á kanóferðalagi sem rúla í Smálöndum?

Nr. 7 | Tony Clifton | 9.09.2003 | 16:27:58 | [+] |

Kostulegt að lesa þessa lýsingu tc á átökunum við skiptiborð Cliftonana. Engu líkara að hamingja hjónbandsins hafi oltið á þessu. Það sem fer í mínar fínu taugar, er að IKEA segir; Innréttingin heima hjá þér endurspeglar hvern mann þú hefur að geyma og að þú verður að nota hluti, til að verða sá sem þú vilt.

Nú, þetta árið voru organistinn og Hudson með á kanótúrnum. Hudson var auðvitað með IKEA katlóg og kvartaði yfir því að líklega kæmi stíllinn frá 1967 aldrei aftur. Organistinn sagði okkur frá sinni verstu IKEA reynslu. Clinton lofaði að keyra borðplötu heim fyrir hann, en gelymdi að súrra borðið fast á þakið á Cherokee'inum.

Nr. 8 | Refurinn Loki | 9.09.2003 | 17:54:36 | [+] |

Amríkutúr Hudson og Organistans tók snöggan enda á I-5 í San Clemente. Alan keyrði þar á gamlan ísskáp og stórt hjónarúm sem höfðu dottið af ofurhlöðnum pickup truck á leið til Mexico. Alan glápti of mikið í áttina að Kyrrahafinu; hann var víst að ímynda sér að Rickard Nixon væri þar gangandi á ströndinni.

Það er ólíkt lífið hans Loka á þjóðvegunum í Dölunum þar sem maður þarf að passa sig á Moose en ekki húsgögnum og heimilistækjum.

Nr. 9 | Organistinn | 9.09.2003 | 19:09:26 | [+] |

Leiðrétting: Myndalbúm Hudsonhjónanna afhjúpar, að einungis var ekið á farlama hjónarúm.

Það sem menn héldu í fyrstu að væri ísskápur anno 1955 var hvítur Chevy Van '75 með rauðu plussi á mælaborðinu og gæru aftur í.

Nr. 10 | Tony Clifton | 9.09.2003 | 19:50:54 | [+] |

....og það þarf náttúrulega ekki að taka það fram, að Chevyinn var eign Hudsonanna þangað til hann endaði á bílapartasölu í útjaðri Stockton.

Nr. 11 | Tony Clifton | 9.09.2003 | 19:52:22 | [+] |

... og ykkur til fróðleiks þá var vaninn hvítur. Haldið ykkur frá hvítum bílum - og hvítum ískápum.

Við þetta má svo bæta að Organistinn er eini maðurinn sem hefur nærri fengið ískáp í augað, en bjargaðist með að kasta sér í tvíbreiðan dívan sem var á ferðinni þarna rétt hjá.

Nr. 12 | AlanHudson | 9.09.2003 | 20:00:34 | [+] |

Ekkert grín að keyra á elg, organisti góður. Lappirnar á þessari furðuskepnu eru svo háar að þú færð þetta beint á framrúðuna. Svona Instant-drive-in-facelift. Ef maður er heppinn endar maður sem slefandi hálfviti í rúllustól með fjés sem er mix ZsaZsaGabor og Keith Richard.

Nr. 13 | Refurinn Loki | 9.09.2003 | 20:18:31 | [+] |

Rétt rétt minn kæri organisti. Í bænum okkar býr einmitt ein íslensk kona. Úr Keflavík. Að öðru leyti er hún alveg ágæt, bakar góðar kökur og sér um póstinn þegar við bregðum okkur bæjarleið. Fyrirtaks nágranni alveg hreint. Maðurinn hennar væri hins vegar betri ef hann hefði ekki þurft að dvelja langdvölum í Víetnam. Það væri amk þægilegra að tala við hann núna þessi misserin. Stríðslýsingar fara nefnilega afskaplega illa með matarlystina hjá Hudsonunum. Jafnvel þó það séu sænskar kjöttbullor úr dós.

Nr. 14 | AlanHudson | 10.09.2003 | 2:12:50 | [+] |

Keith er kúl.

Sá kappann spila fyrr í sumar. Dreymdi alla tónleikana að hefja framleiðslu á sandspartli í eyðimörkinni og fá "Keith" skrásett sem vörumerki.

Markaðurinn stór, því kúnnarnir í Ikea eru allir að endurnýja íbúðina sína. Þetta sannaðist allt í kanóferðinni, þar sem Hudson og Organistinn söfnuðu heilu tjaldstæði af ferðamönnum í kringum "bålplatsen".

Þar var spilað á gítar og sungið frameftir nóttu....

...upp úr Ikea bæklingum. Á sænsku.

Mestu tilþrifin átti hinsvegar Loki þegar hann söng alla eldhúskaflana við lýrík Stones, "I can´t get no....".

Svo impónerandi að allir þýsku ferðamennirnir á tjaldstæðinu afklæddust á staðnum og hentu sér út í vatnið. "Gillette" hummaði TC og setti í snatri upp sölubás með tilheyrandi kremi og eggvopnum á bryggjunni.

Salan gekk vel, og héldu þeir kumpánar því ferðinni áfram........alveg eins og Thelma og Louise.

Nr. 15 | Tony Clifton | 10.09.2003 | 4:34:27 | [+] |

Alan, þetta var bara djók hjá mér; ég var að gera grín að fordómunum gegn könum.

DR. Cronex tekur sig greinilega dálítið hátíðlega eins og nafnið bendir til. He, he...

Nr. 16 | organistinn | 10.09.2003 | 8:35:07 | [+] |

Auðvitað lá eitthvað í loftinu eftir að hirðin gerði misheppnaða tilraun til þess að skrifa ródmúví úr snjáðum verslunarbæklingi.

Fyrr á árinu fjárfestu Cliftonarnir í stóru kúbeini.

Eldhúsið var berStrípað með stóru essi.

Betri helmingur teknaði og valdi einingar í smekklegt kremlitað IKEA kitt sem passar bæði við tíðarandann og litinn á Kitchenaid hrærivélinni (sem af öllum stöðum var keypt á útsölu á Íslandi, vaskurinn heflaður af, og henni smyglað laumulega úr landi).

Og það var í dag sem Clifton´s bárust fréttirnar:

ÞEIR ERU HÆTTIR AÐ FRAMLEIÐA ÞESSA TÝPU!

Hefði andskotakornið ekki verið í lagi að leyfa manni að klára innréttindarandskotann?

Vantar bæði kappa og eitt stykki skáp, 15x80x45.

Og hvað ef maður rekur toppstykkið upp í eina hurðina sem svo flýgur af hjörum og skilur eftir sig myndarlegt misgengi í borðplötunni?

Sór það fyrir nokkrum árum þegar sófinn var keyptur að setja ekki svo mikið sem notaðar bleyjur minnsta Cliftonsins í poka frá sjoppunni. En auðvitað beygir maður sig niður í duftið þegar sá skandall fjarlægist: ekki hægt að fá skammel né stóla í sama lit og andskotans svefnsófadruslan sem var ekki bara dýr, heldur níðþungt helvíti. Og verður alltaf ljótari með hverju barnaafmælinu sem Cliftonarnir halda.

Vill maður þá heldur biðja um eldhúsbedda og panel í sænska landkökkinu (les: -sjökk) hans Loka.

Og svo eru menn alltaf að væla yfir einhverju ástandi á vesturbakkanum..............

Puuhh fyrir því!

Nr. 17 | Tony Clifton | 10.09.2003 | 20:36:12 | [+] |

Þú ert að ná þessu TC, en Loki er með betri byrjun:

"Það var fjölmenni í minningarthöfn Cliftons. Eins og oft þegar viðkomandi hefur á einhvern hátt skorið sig úr fjöldanum og gert hlutina eftir eigin höfði. Presturinn fór með nokkur amen hér og þar, og organistinn hamaðist eins og hann væri að halda á sér hita eða væri í inntökuprófi hjá Trúbroti árið 1971. En allir virtust finna sig í þessu. Enda eru slíkar uppákomur fyrir okkur sem enn lifum, þótt annað standi í dánartilkynningunni. Enginn klagar yfir útför, nema kannski sinni eigin. Hudson fór með ljóð, ég man að það endaði með "Við lifum bara einu sinni. Og sofum út í eilífðinni."

Nr. 18 | Refurinn Loki | 10.09.2003 | 20:43:10 | [+] |

Það var skollans handleggur að fara með þetta ljóð. Ég mátti sturta í mig hálfri Southern Comfort uppi í klukknaportinu til að fá í mig smá kjark og hefði sennilega hrasað þarna útúr turninum ef presturinn hefði ekki verið þarna í leyni undir segldúk að lesa uppúr gamansemi guðspjallanna eftir séra Jakob. En þetta bjargaðist og séra Stefán F. Stefánsson studdi mig niður og sagði mér að standa kyrr þangað til hann gæfi merki um að lesturinn skyldi hefjast. Auðvitað misskildi ég þetta þegar hann lyfti höndum og blessað söfnuðinn. Útkoman var undarlegustu blessunarorð síðari tíma, "en alveg í anda herra Cliftons" eins og presturinn sagði síðar.

Úr erfidrykkjunni man ég ekkert en hef heyrt að organistinn og refurinn Loki hafi sest niður úti í horni og spilað saman á mandólín og ferimín. Útkoman var hræðileg, svona líkt og blanda af Norskum brjóstdropum og mysu.

Nr. 19 | AlanHudson | 10.09.2003 | 20:54:05 | [+] |

Hmmm, er sem sagt ætlað sama hlutverk og Laura í Twin Peaks.

Sunginn burtu í fyrsta þætti.

Kannski ekki svo slæmt þegar handritið er uppvöðlaður Ikeabæklingur.

Apropos hammond -- átti hljóðsporið úr Casino, Loki?


ps. biðst forláts á urmul stafsetningavillna í ofangreindum pistlum, en það er einungis á góðum degi sem heilahvelin tengja.

Nr. 20 | Tony Clifton | 10.09.2003 | 20:57:58 | [+] |

Casino eða Casino Royale? Ertu ekki búinn að tapa nóg í spilakössunum í Vegas, Tony? Jú, einhvers staðar á ég Otis Redding á bláum nótum, syngjandi um hvað allt er dapurt og erfitt. Sendi honum um hæl tvær pepup-hljóðsnældur með TC. Svo núna byrjar hann hvern dag með müsli, Billboard og uppbyggilegum TC i bakgrunninum "Þú ert bestur", "Þú ert stjórinn", "Í dag er fyrsti dagurinn í restinni af lífi þínu", etc.

Nr. 21 | Refurinn Loki | 12.09.2003 | 5:44:17 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff