»  off record  »  On record
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
On record
Miðvikudagur, 17. september 2003

Ég náði nýjum og stórmerkum áfanga á blaðamennskuferlinum í dag. Ég er nefnilega búinn að fá mér diktafón en ég hef skömm á svoleiðis drasli og hef aldrei getað vanið mig á að nota svoleiðis á þessum fimm árum.
Ásgeir Friðgeirsson sagði mér þegar hann ritstýrði mér á www.visir.is að það væri miklu betra að nota teipið ekki og þau orð standa enn. Teipið tefur alla úrvinnslu og fólk hefur hingað til ekki séð ástæðu til að gera athugasemdir við það sem ég hef eftir því þó ég styðjist bara við glósur og minnið. Fyrir utan það að ég fékk einu sinni krass kúrs í hagnýtri fjölmiðlun hjá lektor við fagið í og þeim lestri fylgdu ákúrur fyrir að nota ekki band. Ég stunda hins vegar óhagnýta fjölmiðlun og hélt því mínu striki.

Viðkvæmir viðmælendur mínir í gegnum árin, skáld og rithöfundar til dæmis, láta iðulega lesa yfir fyrir sig enda ofsalega (texta)meðvitað fólk. Í þeirra tilfellum held ég að það hafi aldrei þurft að hnika til stafkrók og einhverjir vilja meina að það sé einmitt vegna þess að þeir voru ekki látnir tala inn á teip. Tungan getur nefnilega líka vafist skáldunum um tönn þegar þau láta móðan mása og sumir teipfíklar buna þessu auðvitað öllu á prent; hverju einasta hummi, hósti og ha-i.

Hvað um það.
Þetta er auðvitað öryggistæki, ekki síst ef maður tekur viðtöl við Jónínu Ben. á slæmum degi en það er önnur saga og ekki mín að segja. Þá þótti líka vissara að nota teip við vinnslu þessarar fréttar. Við félagarnir áttum nú ekki tæki í fórum okkar og ég þurfti að standa í meirihátatr stússi við að fá lánað tæki - eitthvað óendalega fullkomið eitthvað diggital drasl.

Teipið hefur líka alltaf brugðist mér, í þau fáu skipti sem ég hef reynt að nota það. Batteríin búinn, tækin ónýt, spólurnar flæktar eða eitthvað álíka og ég tek ekki eftir neinu, jafn tæknilega fatlaður og ég er, leyfi fólki að vaða elginn með hálfan hugann við það sem það er að segja af því að ég er að skrásetja þetta allt á teip (rosa öryggi). Sit svo uppi með þögn þegar kemur að úrvinnslunni. Betra að sleppa þessu.

Sorglegasta teipklikkið mitt er líka það fyrsta (þ.e.a.s. fyrsta skipti ever sem ég notaði teip). Hringdi í Finn Ingólfsson, þáverandi iðnaðar- og viðskiptaráðherra til að fá komment. Hafði farið á blaðamannafund hjá honum um sölu FBA nokkrum dögum áður. Hann virtist ætla að sigla lygnan sjó þar til ég baunaði böggspurningu á hann og í kjölfarið tóku aðrir við sér og þjörmuðu svolítið að honum.
Fundurinn barst í tal í símtali okkar og Finnur spyr hvort ég sé ekki örugglega Þórarinn Þórarinsson, sonur Þórarins Þórarinssonar, sonar Þórarins Þórarinssonar a.k.a. Tíma Tóta. Það passaði. "Af hverju spurðirðu þá svona leiðinlega á fundinum?" Það hefði verið gaman að eiga þetta, svona af því bara. (Þess ber að geta að Finnur var ekkert að æsa sig og höfðaði til samviskunnar og framsóknarhjartans með því að skammast á léttu nótunum).

Teipið hefur stoppað oftar þegar framsóknarmenn eru annars vegar. Nú síðast þegar ég tók viðtal við Steingrím Hermannsson. Sá að vísu í miðju kafi að allt var stopp og tók punkta og skrifaði svo viðtalið eftir minni með smá hjálp Steingríms. Hann hafði, ólíkt Finni, orð á því að ég spyrði ekkert leiðinlega eftir að ég sagði honum gömlu teipsöguna og frá óförum mínum við að ná framsóknarmönnum á band.

Ástæðan fyrir því að teipin eru alltaf að bregðast mér er fyrst og fremst sú að ég fæ þau lánuð hjá félögum mínum á 11 stundu og þeir eru ekkert að hirða um að tékka á rafhlöðum og öðru þess háttar. Þetta klikkaði síðast fyrir viku síðan og þá fékk ég endanlega nóg og gafst upp. Nú er ég offissíallí kominn með minn diktafón og í þau fáu skipti sem ég þarf að nota hann get ég verið viss um að ekkert muni klikka. Lock and load baby.

Djöfull eru þessar færslur orðnar fáránlega langar hjá mér. Ég myndi ekki nenna að lesa þetta þó ég ætti lífið að leysa. Held ég hætti þessu og snúi mér að símskeytastílnum. Þetta er ekki bloggfærslur, þetta eru pistlar og þar fyrir utan búllsjitt.


| 22:06 |
komment

Allt er teipað og myndað í Vegas. Ekki einu sinni þörf á fréttariturum.

Sit fastur í melankólínskri stemmingu:

“my hands around your throat, if I kill you now, well, they’ll never know”

Sögðu Tindersticks og sungu um daginn. Rómantískur söngur um morgundrauma.

Loki -- varstu sendur í göngur í Smálöndum?


tc

Nr. 1 | Tony Clifton | 18.09.2003 | 17:42:43 | [+] |

Tóti

Re. skúbb -- fylgist þú með því hvernig ráðið verður í stöðuna seinna í haust?

Nr. 2 | Tony Clifton | 18.09.2003 | 18:29:00 | [+] |

Tóts; blaðamaður af þínu kaliberi notar ekki teip; því í fjáranum varstu að ná þér í það; kominn alla þessa leið maður og tekur svo upp á þessu skratta.
mamms

Nr. 3 | sils | 18.09.2003 | 22:17:10 | [+] |

Það er ekkert að því að nota teip. Bara snobb að láta eins og það sé ófínt. Málið er bara að nota það rétt. Bara til stuðning og éta ekki orðrétt upp japb, jaml og fuður málhaltra viðmælenda. Skrifa hlutinn eins og viðkomandi heldur að hann hafi sagt hann....

Nr. 4 | D.B. | 22.09.2003 | 17:13:35 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff