»  off record  »  Sagnfræði
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Sagnfræði
Þriðjudagur, 09. september 2003

Hraðfletti í gegnum nokkrar gamlar úrklippubækur um daginn til þess að finna stöff um Paul Watson fyrir úttektina sem ég var með um hann í Fréttablaðinu um daginn. Fór svo með eina í vinnuna til að skanna Óvini Íslands úr Eintaki og þá kom á daginn að félagi Jakob hafði skrifað eitthvað um 60% af öllu dótinu sem ég hafði séð ástæðu til að klippa út það árið. Það er því óhætt að segja að við eigum skap saman ég og káti Hafnfirðingurinn.

Það er líka alveg ljóst að ég verð að herða mig í skanninu og bæta við í Úrklippurnar. Margt þarna sem þolir vel dagsins ljós ennþá. Ótrúlegt hversu margt sem skrifað var 94-95 á vel við í dag, ekki síst Gulu Pressufréttir um uppsagnir á Stöð 2. Maður sér það líka þegar maður lítur svona til baka að það er óttalega lítið fútt í blöðunum þessi árin; eintóm loðmulla, political correctness og pempíuskapur. Menn voru meira að brúka kjaft fyrir áratug en jafnast þó auðvitað ekkert á við það hvernig menn tókust á á fyrri hluta síðustu aldar.

Watson var annars bara helvíti hress og viðræðugóður. Auðvitað fullur af skít og þannig fannst Haraldi Blöndal hann gera sig full breiðan og benti mér á að Watson væri tékkasvindlari og þjófur en hann fyllti Ocean Warrior með olíu frá Olís sem var greidd með innistæðulausum tékka. Watson sigldi að sögn lögmannsins einnig frá ógreiddum reikningi og gerði sig því sekan um það sem kallast hotelbedrageri á fínu dönsku lagamáli en við því liggur allt að 6 ára fangelsisvist. Þess vegna er nú "hryðjuverkamaðurinn" Watson útlægur ger frá Íslandi og persona non-grada á Schengensvæðinu.

Brunaði líka í gegnum slatta af gömlum Pressumolum af öðrum ástæðum. Rosalega vorum við Hrafn góðir á meðan Strikið var upp á sitt besta. Það væri nær að endurbirta best of frá okkur frekar en að reyna að púkka upp á þetta svona.


| 21:29 |
komment

Lér meiðist enn.

Nr. 1 | pallih | 10.09.2003 | 17:30:02 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff