Miðvikudagur, 10. september 2003
Ég komst að því í kvöld að skák er bara býsna spennandi íþrótt þegar ég fór og fylgdist með Hróknum vinna TR í undanúrslitum Hraðskákkeppni skákfélaga. Mínir menn unnu þetta með 39 og 1/2 vinningi gegn 32 og 1/2 og stóð þetta bara býsna naumt á tímabili.
Töffarinn Sokolov (sem deilir afmælisdeginum 13. júní með mér og Kristjáni fjallaskáldi) var eins og jarðýta framan af og kláraði með 9 og 1/2 vinningi.
Þá var skundað á Grand Rokk where it all began til þess að fagna.
Tóti á barnum:
Viltu bjór?
Nei takk. Kók bara.
Drekkurðu ekki?
Nei, ég er nýorðinn alkóhólisti.
Þessi var djúpur.
Snillingurinn og sjónháttarfræðingurinn dr. Bjarni Þórarinsson var þarna, en ekki hvað, og talaði um púlhestinn sem er alltaf að puða við að koma sér út úr vandræðum. Ég er púlhestur.
Hann er líka að reyna að innleiða nýjan drykkjusið sem gengur út á það að í stað þess að segja þetta "gamla, leiðinlega skál" þegar menn lyfta glösum eiga þeir að segja "hestur". Þá má líka spyrja "hvaða tegund?" ef undirtektirnar eru slappar. Í hans tilfelli er það rugguhestur.
Talaði bæði við Jón Steinar og Hannes Hólmstein off record í dag. Það er synd þar sem þeir voru báðir skemmtilegir.
| 23:52 |