»  off record  »  Steiktir englar
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Steiktir englar
Þriðjudagur, 30. september 2003

dd21.gifNú veit ég ekki hvort mér er heimilt að færa þetta í letur en í einu bréfinu sem HKL skrifaði móður sinni ungur og nú er vistað á Þjóðarbókhlöðunni sagði hann að sér liði eins og steiktum engli.
Þetta bréf var, ef ég man rétt, lesið upp við hátíðlega athöfn á bókasafninu þegar fjölskylda skáldsins afhenti bréf hans til varðveislu á Degi íslenskrar tungu. Mér skilst á fréttum að þetta hafi verið fyrir 7 árum síðan, en trúi því svona rétt mátulega. Er eins og gerst hafi í gær.

Laxness þótti gott að líða eins og steiktum engli þannig að það eru litlar líkur á því að Hannesi Hólmsteini finnist hann vera steiktur engill þessa dagana, nema hann leggi annan skilning í þetta en nýjasta viðfangsefni sitt (sem er síður en svo ólíklegt).
Það er skarplega athugað hjá Stefáni Pálssyni meintum besta og frægasta bloggara landsins að Sverrir einkamálabloggari stóð sig með stakri prýði í Ísland í dag í gær.

Sverrir var fínn á Stöð 2 í gær að ræða Laxness-bréfin. Óskaplega var Steinunn Sigurðar þó stressuð. Fyndið að Múrverjar hafi lent í því hlutverki að verja Hannes Hólmstein, en ef menn ætla að vera samkvæmir sjálfum sér lenda menn oft í því að verja fólk sem maður... - tja, á fátt sameiginlegt með.

Kannski líður Sverri eins og steiktum engli enda fátt flottara en að vera sjálfum sér samkvæmur og leggja HHG lið.

Snillingnum bróður Óskars Aðalsteins hefur örugglega líka liðið eins og steiktum engli þegar hann vaknaði upp við góðan draum með skyrslettur frá BadaBing! framan í sér. Ég, í sjálfhverfu minni, lít auðvitað svo á að ég einn og enginn annar hafi vakið hann upp af Þyrnirósarsvefninum þannig að hann geysist nú fram á bloggvöllinn á 100 kílómetra hraða. Nú er ekkert eftir hjá snillingnum annað en að standa við stóru orðin og taka af öll tvímæli um að frýjunarorð mín vegi þyngra en skammir Onkel snillings fyrir bloggleti.

Ég er brjálaður strippari með skítkast og mér líður eins og steiktum engli.


| 10:31 |
komment

Mig minnir að í sjónvarpsmynd Hrafns hafi englarnir fengið sér shake í sjoppu þar sem voru brjálaðar fótboltabullur eftir tapleik. Bullurnar ákváðu að fá útrás fyrir heift sína á englunum og börðu þá til bana. Fleyg urðu ummæli aðalbullunnar þegar hún horfði á lík englanna eftir ódæðið: "Þetta er eins og búðingur."

En kannski voru fleiri englar á sveimi í myndinni.

Nr. 1 | Tóta P. | 30.09.2003 | 23:51:17 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff