Miðvikudagur, 24. september 2003
"Klám" er orðið algengasta leitarorðið sem lokkar fólk af leitarvélum inn á BadaBing! og nafnið á síðunni gefur síðan vissulega ákveðin fyrirheit um nekt þar sem það er sótt til þekktasta súlustaðar í heimi BadaBing! í New Jersey. Ég er með hálfgerðan móral yfir þessu og er að spá í að skanna allt Jennu Jamesdóttir safnið mitt og vista það á síðunni.
Ég vil nefnilega síður vera staðinn að svikum.
Sjálfur hef ég til dæmis alltaf verið Kóka Kóla trúr áratugum saman og hef drukkið það bæði blandað og óblandað mér til mismikillar ánægju. Nú verður mér hins vegar óglatt í hvert skipti sem ég fæ mér kókglas þar sem Idol skrílinn af Stöð2 er kominn utan á flöskurnar. Þetta eru svik við mig og aðra sem dagsdaglega líta fram hjá því að drykkurinn er framleiddur af gyðingahyski sem er blóðugt upp að öxlum, nýlendukúgurum og kapítalistasvínum, en það eru takmörk.
Þetta eru svik við eitthvað, ég bara veit ekki hvað. Ekki markaðsöflin þó.
Það fór um mig hrollur þegar ég kom að rannsóknarblaðamanninum Reyni Traustasyni og bókmenntaáterítotinu Kolbrúnu Bergþórsdóttur þar sem þau rýndu í BadaBing! í dag. Ekki leið mér betur þegar fréttahaukurinn sagðist hafa fundið á síðunni ýmsan skít sem ég hefði skrifað um kollega Eirík Jónsson í gegnum tíðina.
EIR brást auðvitað hinn versti við en einföld uppfletting í leitarvél síðunnar sýnir og sannar að ég hef ekki sagt styggðaryrði um EIR, ekki einu sinni þegar ég var sem verstur í neyslu.
Það hefðu verið svik við einhvern óljósan málstað, ég veit ekki hvern.
Þetta var samt óþægilegt og þetta er spurning um að hætta að skrifa illa um fólk eða hætta að gera þau skrif aðgengileg almenningi. Mér sýnast í það minnsta nornaveiðar vera í uppsiglingu og ég treysti mér ekki til að taka pusið í hnakkan þegar RT og EIR eru annars vegar.
| 23:00 |