»  off record  »  Tú ðe fokking poínt
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Tú ðe fokking poínt
Þriðjudagur, 23. september 2003

Það gilda einföld lögmál um fréttaskrif og satt best að segja eru vísindin sem liggja þar að baki ekki flókin. Fréttir eru ekki menntaskólaritgerðir með tilheyrandi inngöngum, meginmálum og lokaorðum - þvert á móti á að hrúga aðalatriðinu, megininntaki fréttarinnar, inn strax í fyrstu málsgrein. Upphaf fréttarinnar á sem sagt að vera tú ðe fokking poínt og þá er jafnframt ætlast til þess að fyrirsögnin feli þennan punkt í sér á listrænt knappan hátt.

Það var gaman að stúdera fyrirsagnir Moggans og DV á fréttunum um fjölmiðlakönnun Gallup í þessu ljósi. Moggamenn hafa svo sem ekki verið öfundsverðir af því að þurfa að matreiða niðurstöðurnar sér í hag og útkoman varð því að vonum vandræðaleg: 50,1% les Morgunblaðið á hverjum degi. Þetta var brandarinn með morgunkaffinu og gaf forsmekkinn að því sem koma skyldi og maður hafði nokkra tíma til að velta því fyrir sér hvernig DV myndi leysa þessa flóknu þraut. Og það verður ekki af þeim tekið að þeir fóru fram úr björtustu vonum aðdáenda sinna: Magasín meira lesið en Birta. Tvímælalaust stærstu tíðindin úr könnuninni og stór hundasúra í hnappagat Sigurðar Boga.


| 23:31 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff