Laugardagur, 27. september 2003
Það er óhætt að fullyrða að ég tók skemmtilegasta viðtalið á ferlinum þegar ég ræddi við Helga Hóseasson í vikunni. Alveg leiftrandi skemmtilegur og kvikur náungi. Sjaldan hitt fyrir mann sem ég er næstum sammála í einu og öllu.
Hann gaf mér eintak af álitsgerð á geðheilbrigði sínu sem hann stal af sínum tíma frá Kleppi, fjölritaði og seldi á tíkall niðri í bæ. Þetta fer í fjársjóðsskúfuna með öllu hinu dótinu sem ég hef sankað að mér í gegnum tíðina.
Hann gaf mér líka bókina Þrælar og Himnadraugar I þannig að Ljóðahornið mun væntanlega hressast til muna á næstunni. Nóg er stöffið þarna.
Það fór svo vel á með okkur (smellið á myndina sem Alda Lóa ljósmyndari Fréttablaðsins tók) að ég var ekkert að segja honum hverra manna ég væri og að hann hefði skvett skyri á afa minn þegar ég var eins og hálfs árs.
Skyrkastinu hefur nú heldur ekki verið haldið neitt gegn Helga í familíunni og þannig las amma til dæmis viðtalið tvisvar í dag af því henni fannst kallinn svo frábær. Við amma grófum svo í sameiningu upp þetta líka fína kort (smellið á myndina til að lesa) sem Helgi sendi afa og öðrum þingmönnum 1976.
Þarna varar Helgi þingmenn við því að hann ætli að sletta málningu á hýbýli þeirra og af stakri sjéntílmennsku leyfir hann þeim að velja litinn sjálfir. Svari þeir ekki innan 5 daga muni hann hins vegar líta svo á að þeir kjósi tjöru.
Kortið var ekki í umslagi og pósturinn hringdi víst í þingmannagengið og varaði þá við þessari köldu kveðju sem til stæði að bera þeim. Amma segir mér að einhverjir kallanna hafi orðið hálf smeykir og hafi hringst á út af málinu. Þá minnir hana endilega að Gylfi Þ. Gíslason hafi fengið tjöru á bílinn sinn, rétt eins og stjórnarráðið.
Mikil var upphefð Gneistans í (3)Fréttablaðinu í dag. Ég sver og sárt við legg að ég mun ekki (1)skrifa fleiri (2)blogggreinar í blaðið, enda hlýtur fólk að vera komið með upp í kok af þessu þrugli.
| 20:56 |