»  off record  »  90210
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
90210
Mánudagur, 13. október 2003

bev21.gifDundaði mér við það að reyna að rifja upp nöfnin á persónum og leikendum í Beverly Hills 90210 á meðan ég lá uppi í rúmi í morgun og beið eftir að verkjalyfin færu að hafa áhrif svo ég gæti drifið mig í vinnuna.

Mundi eftir Luke Perry og Dylan. Hétu þau svo ekki Brenda og Brandon systkinin? Var ekki viss. Strákurinn gæti hafa heitið Jason. Jason? Gribban sem lék Brendu heitir Shannen Doherty en það var alveg stolið úr mér hvað sá sem lék Jason/Brandon hét (Jason Priestley, man það núna. Þarna kemur skýringin á Jason ruglinu). Tori Spelling lék Donnu (sauðheimsk og fékk hlutverkið af því pabbi hennar framleiddi þættina) og Brian Austin Green lék kærastann hennar, var það ekki? Hét hann ekki David? Var aðallega eftirminnilegur fyrir þær sakir að hann var sá eini sem lék í þessum táningahópi og var ekki kominn vel yfir þrítugt.
Mundi líka eftir fíflinu Steve sem einhver Ian bla bla bla lék og Andreu sem var ekki gella og því engin ástæða til að mun eftir þeirri sem lék hana. Verst af öllu þykir mér nú að ég man ekki hver lék Kelly. Hét hún ekki Kelly, þessi ljóshærða sem mér fannst sætust? Hélt a.m.k. með henni þegar hún og Brenda, hét hún ekki Brenda? tókust á um Dylan.
Dylan var frábær. Ríkur Beverly Hills gaur sem bjó einn og lifði á trust fund. The Prince of Bel Air. Keyrði um á geggjuðum Porche og þegar hann heillaði gellurnar setti hann The Complete Works of Lord Byron í farþegasætið. Gellan tekur upp bókina. Byron, who? Þá svarar töffarinn að bragði, glottandi út í annað: Mad, bad, and dangerous to know og skutlar bókinni aftur í. Tær snilld. Segiði svo að þessir Hollywoodkrakkar viti ekki neitt.
Símsvarinn hans var líka svalur, eða þannig. It´s Dylan. You know the drill.

Ég óttast um geðheilsu mína.


| 13:11 |
komment

Verkjalyfin!? Stefnir Tóti á stefnumót við Rush Limbaugh?

Nr. 1 | Organistinn | 15.10.2003 | 1:24:14 | [+] |

Organisti

Ég er nú farinn að hafa áhyggjur af Tony Clifton. En, ég held að það sé með Tony eins og gamla rokkara, sem maður er farinn að efast um að komist í gegnum konsertinn óstuddir. Þá er bara að hengja gítar um hálsinn á þeim og þeir sjá um restina. Svona er það með Tony Clifton; réttu honum gítarnögl og hann er tilbúinn í slaginn.

Clifton er enginn Raymond-Chandler-alki-light. Og karlinn er með rokksál, þó hann fylgist kannski ekki svo vel með nýjustu straumum og stefnum. Á Mirage treður hann alltaf upp í Dr. Martens-stígvélum og heldur sig við slagara frá Dream Syndicate, Violent Femmes og Long Ryders.

Nr. 2 | Refurinn Loki | 17.10.2003 | 10:10:17 | [+] |

LOKI:

Var það ekki Loki sjálfur sem gaf Snowboarding nýtt líf með því að fræsa niður Skálafellið á húddi af appelsínugulri Bjöllu sem í den ku hafa verið í eigu Reykjavíkurborgar?

Áratug síðar, eða svo, er giggið endurtekið. En í þetta skiptið á gítarnögl.

Attitjúd og snjóbretti er eina líflínan sem X-kynslkóðin á eftir.

TÓTI: Hvað með Ray Cokes (hét hann það ekki) á MTV á samtíma 90210?


tc

Nr. 3 | Tony Clifton | 19.10.2003 | 20:23:48 | [+] |

Loki:

Smá viðbót -- eða leiðrétting; say rather Buddy Guy!

Nr. 4 | Tony Clifton | 19.10.2003 | 20:26:34 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff