Þriðjudagur, 28. október 2003
... að maður legðist svo lágt að pósta komment á spjallþráð. Það er þekkt staðreynd að ég hef hingað til ekki kært mig um að taka þátt í Ólympíuleikum fatlaðra á Netinu en þar sem einhver skítbuxinn tók sig til á Press.is og pósaði sem félagi Jakob og Organistinn , sá góði fastagestur, mátti ég til með að hreyta ónotum í Málverjana sem eru að trana sér fram á Press.is. Það hefur svo sem aldrei verið neitt leyndó að mér er meinilla við nafnleysingja þó bullið í þeim sé oftast hin besta skemmtun.
Þetta valid point of view kom fram í Bakherberginu:
Þetta er í senn dapurt og fyndið hvernig þessi vefur blaðamanna hefur snúist uppí umfjöllun um málefnin-dot-com og nafnleysi. Þetta virtist byrja með sæmilega málefnalegum umræðum um fagleg efni. En þeir sem voru að skrifa þarna voru þó dálítið útþandir af lofti og létu óspart frá sér niðrandi komment um málefnin.com og nafnlausu aumingjana -- áður en slíkir fóru að skrifa þar.
Satt að segja held ég að þessi uppskrúfaða condescension blaðamannanna sé m.a. ástæðan fyrir hvernig málin hafa þróast. Í fyrsta lagi voru þessar umræður ekki ÞAÐ merkilegar, og í öðru lagi gaf þessi vefur, sem svo hrundi af tæknilegum orsökum, varla tilefni til að gera stöðugt lítið úr vefnum Málefnin.com.
Ég held að þetta hafa valdið því að kleppararnir fóru að hefna sín og djókerarnir sáu auðvitað spaugilegu hliðina og fóru að hræra í tilgerðarlegum blaðamönnum sem voru auðveld bráð.
Blaðamenn eru auðvitað að drepast úr sjálfverfu, það vita allir, en þrátt fyrir það eru þeir ólíkt málefnalegri og yfirvegaðari í spjalli sínu en hin ídjótin og ég stend því við þetta. Út með pakkið! Það er best geymt í fjórðavalds leiknum sínum á Málefnunum.
Það er allt að verða brjálað í skákinni sem er ekki til þess að slá á króníska hausverkinn og stressið sem hefur verið að þjaka mig síðustu 3 vikur.
Hef þó komist að því að í stað þess að blasta Guns N´Roses, Rammstein og The Doors og brjálast er betra að spila Duran Duran og syngja með. Virkar betur en sund, heit setlaug og gufa. Rétt missti samt af frábæru málþingi í pottinum í kvöld en þar sem saman eru komnir ráðherra og heimspekilegur blaðamaður þar er fjör.
Komst óvænt að því í dag að ég þekki hin fræga bloggara Dr. Schnitzel og bæti honum í skjallbandalagið enda kallar hann mig Il capo di tutti capi sem ég skil ekki alveg en það hlýtur að vera eitthvað svaka mafíósó kúl og töff.
| 0:29 |