Miðvikudagur, 08. október 2003
Peningar, peningar, peningar. Þið kaupið ekki hamingjuna en þið gerið eymdina miklu bærilegri.
Orð dagsins eru sótt til Brakúla greifa og eru tileinkuð öllum blaðamönnum. Nær og fjær.
Ég átti í dag langt og innihaldsríkt spjall (mónólóg) um blogg við gamalreyndan blaðamann sem kallar ekki allt ömmu sína. Sá hafði þvælst af einni bloggsíðunni á aðra í alla nótt og botnar ekkert í hvað allir þessir vitleysingar eru að tjá sig á veraldarvefnum.
"Þetta er vælandi um einhver prívatmál eins og þá vanti 500 kall og að mamma þeirra hafi verið vond við þá. Hvað er allt þetta fólk að gera? Er ekki hægt að sortera þetta eitthvað út? Hugsaðu þér ef allir gæfu út dagblöð. Hvernig væri heimurinn þá? Það eru sem betur fer einhverjar takmarkanir á því. Þetta er fjasandi um prívatmál sem koma engum við og maður kærir sig ekkert um að vita um. Hvað er að þessu liði?"
Góðar spurningar og ég get ekki svarað þeim. Niðurstaðan varð sú að kynslóðin sem bloggar mest sé aumingjakynslóðin sem kennir foreldrum sínum um allt og kemst upp með það og heldur þannig heilu herdeildunum af sálfræðingum á floti.
Þessum ágæta manni hafði verið talinn trú um að bloggið væri nýtt listform en hann fæst ekki til að trúa því.
Það þarf auðvitað ekki að taka fram að þetta blogg ber höfuð og herðar yfir önnur að hans mati enda er þetta hugsað sem póstmódernískt brotaverk (minnir að Bloggari dauðans réttlæti sitt blogg á sömu listrænu forsendum þó við eigum fátt annað sameiginlegt en að renna stoðum undir þá kenningu að vinstri menn séu þeir einu sem kunni að blogga) og ég hef tamið mér einlægan ýkju- og lygastíl ákveðins kollega míns. Þannig að þó allt virðist vera sagt í einlægni hérna þá stendur ekki steinn yfir steini. Það er líka rétt að taka það fram að ég er alkóhólisti af því að pabbi og mamma fluttu með mig sex ára gamlan úr Vesturbænum í kópavoginn og eyðilögðu þar með líf mitt.

Jæja, þá er Arnold orðinn governor. Spurning hvort það sé ekki ráð að færa lélega leikara yfir í pólitíkina og öfugt. Og þó, það kemur á sama stað niður. Fólki er vitaskuld um og ó en Schwarzenegger getur varla verið hættulegri en Reagan sem mig minnir að hafi meinað The Doors að spila á Woodstock. Ég hélt pínu með Arnie þar sem bíómyndir hafa fyrir löngu brenglað öll gildismöt mín og mér finnst alltaf eitthvað heillandi við það þegar leikarar stökkva af hvíta tjaldinu yfir í raunheima. Fannst t.d. O.J. eiginlega eiga að fá að komast upp með morðin af því hann lék í Naked Gun og Towering Inferno. Sjúkt.
| 21:51 |