»  off record  »  Bögg, bögg, bögg
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Bögg, bögg, bögg
Þriðjudagur, 07. október 2003

dond.gifMig vantar pjéning. Maður hefði nú haldið að það væri ávísun á auðævi að hætta að drekka en slíkt breytir litlu fyrir menn sem eru meistarar í því að drekka frítt og komast upp með að vera fullir allar helgar með u.þ.b. 10.000 króna sjálfsábyrgð á mánuði. Verð líklega að hætta að reykja líka með þessu áframhaldi.

Hitti náunga um daginn sem sagðist alltaf hafa getað nurlað saman fyrir köggli á meðan hann var í neyslu en eftir að hann hætti eigi hann í mesta basli með að aura saman fyrir strætó.
Ég er semsagt pissed as in fúll en ætla þó ekki að stækka prósakkskammtinn. Verð samt að fá útrás með því að dissa einhvern en má það ekki. Slíkt er nefnilega alls ekki merki um bata. Hlýt samt að mega vega að þessum nafnlausu njólum á Málefnunum. Ég er að vísu mjög áfram um nafnlausa umræðu, þannig lagað, og viðurkenni fúslega að sums staðar er hún bráðnauðsynleg. Ég skil hins vegar ekki hvernig þessi nafnlausi skríll getur endalaust verið með sjálfan sig á heilanum. Það er einhver þversögn fólgin í því að þora ekki að vera maður sjálfur en geta samt ekki hætt að góna í naflann á sér.
Einhverjum alvitringi dettur í hug að setja ofan í við þá í einfeldningslegri grein í Mogganum og liðið umturnast og ræðir ekki um annað dögum saman en hversu mikilvægir nafnlausir netnöldrarar séu lýðræðinu og opinni umræðu í þjóðfélaginu. Fair enough. Þetta er ekkert nýtt og er persónuleikaeinkenni á þeim Málverjum sem eru ekki með bílpróf og hafa því ómældan tíma til að spjalla þar sem þeir geta ekki ekið leigubílum.
Geggjunin og paranoian er hins vegar búinn að ná nýjum og áður óþekktum hæðum nú þegar þeir eru þess fullvissir að nornaveiðar séu í gangi og allir sem hafi sagt styggðaryrði, á vefnum- aðallega Málefnunum auðvitað, um Sjálfstæðisflokkinn og leigu(þý)morðingja hans séu dæmdir til glötunnar. (Stebbi Fr. er auðvitað flottastur. Það er ekki nóg að hann komi fram undir yfirfullu nafni, heldur einnig undir merkjum Fálkans, mynd af sjálfum sér, brosandi sól með góðærissólgleraugu og sítati í W.Woolf. Þetta þýðir vitaskuld ekki að hann sé neitt svalur töffari þar sem viðhorf hans harmónera fullkomlega við stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins). Yfir þessu fárast nóboddíin á meðan haugur af fólki veitist að íhaldsskúrkunum og framsóknarnjálgunum undir nafni á vefnum og annars staðar en er samt við hestaheilsu og hverfur sárasjaldan með óútskýranlegum hætti.
Húah! Mér líður miklu betur og ðe trúð is vissulega át ðere.


| 22:17 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff