»  off record  »  Fæst orð og allt það....
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Fæst orð og allt það....
Sunnudagur, 05. október 2003

Hannes Hólmsteinn er eitthvað ekki að fíla það sem Tóti Leifs skrifar um hann á blogginu sínu. Það þýðir nú lítið að ætla að skamma Tóta eða læða inn hjá honum samviskubiti.

Einhvern tíma þegar það var verið að leggja mér lífsreglurnar (eftir að hafa trampað á viðkvæmum tám) var mér sagt að skrifa aldrei neitt um nokkurn mann sem ég treysti mér ekki til að segja við hann feis tú feis. Þori að hengja mig upp á að nafni væri til í að segja miklu meira en bara þetta upp í opið geðið á Hannesi eða hverjum sem er ef því er að skipta.
Sjálfur hef ég haldið mig við þessa reglu og treysti mér til að standa við allt sem ég hef skrifað um einhverja hérna en útiloka þó ekki að einhverjir verði beðnir afsökunnar í 9. sporinu.

Aldrei hefði ég trúað því að ég ætti eftir að þurfa að standa í þessum sporum.


| 23:12 |
komment

Ég ætlaði að debútera um þetta inni á málefnunum en fékk svo móral yfir orðbragðinu og ákvað að draga frekar í land en fá yfir mig tölvupósta HHG. Skáldaði svo eitthvað í eyðurnar sem mynduðust... og það eina sem hafðist uppúr þessu var að DrCronex hefur stimplað mig vanvita fyrir lífstíð. Frú Hudson er eyðilögð yfir því, því hún vill auðvitað ekki að sannleikurinn um Hudsonana komi í ljós, allra síst á malefnin.com.

Þar hefurðu svarið við spurningunni þinni organisti!

Nr. 1 | AlanHudson | 6.10.2003 | 5:19:36 | [+] |

Það má kannski bjóða málinu upp í einkadans?

Er með mörg gigg í gangi þessa dagana, orðinn þegjandi hás, en vonast til að geta jónað ykkur von bráðar!

tc

Nr. 2 | Tony Clifton | 6.10.2003 | 16:43:18 | [+] |

Það má kannski bjóða málinu upp í einkadans?

Er með mörg gigg í gangi þessa dagana, orðinn þegjandi hás, en vonast til að geta jónað ykkur von bráðar!

tc

Nr. 3 | Tony Clifton | 6.10.2003 | 16:43:20 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff