Föstudagur, 24. október 2003
Helgi Hós var brattur á frumsýningunni og fékk fyllilega verðskuldað standing ovation að sýningu lokinni.
Böðvar Bjarki bauð svo upp á eitthvað böbblí stöff eða hvítvín en tók samt fram að slíkar trakteringar væru lítt í anda Helga.
Ég rak mig á það enn eina ferðina að það er hvergi reiknað með ölkum og fékk því ekkert að drekka frekar en Helgi sem fullvissaði mig um að hann hefði verið sáttur við viðtalið og bætti því svo við að sér þætti furðulegt að nú vildu Moggakarlarnir allt í einu tala við sig.
"Nú vill helvítis Mogginn senda til mín ljósmyndara og skrifara. Ég er ekkert hrifinn af því. Mogginn hefur ekki haft áhuga á mér áratugum saman en nú er allt í einu allt upp í loft??"
Jamm. Þetta er undarlegt líf. Tóta pönk var á staðnum og var að fíla þetta. Sá líka glitta í frægasta bloggarann og stjörnufriðrsinnann Stefán Pálsson en hitti ekki á hann. Þori að veðja 100 kalli að Mótmælandi Íslands sé mynd að hans skapi.
| 0:00 |