»  off record  »  Kjarni málsins
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Kjarni málsins
Laugardagur, 18. október 2003

Mbl snillingarnir fara á kostum í þessari frétt sem segir allt sem segja þarf af örlögum einhvers manngarms sem glamraði á gítar í píkupoppsveitinni Kiss sem var flokkuð sem þungarokksband á æskuárum mínum.

Fyrirsögnin er þessi: Gítarleikari Kiss skotinn í fótinn

en síðan fylgir sögunni að gaurinn hafi verið skotinn í fótinn og höfuðið fyrir utan næturklúbb í Hollywood. Yfirleitt er það nú fréttnæmara þegar menn eru skotnir í hausinn en tána en það sem er allra verst er að maður er engu nær um heilsu mannsins eftir að hann var skotinn í fótinn... og hausinn?

CNN upplýsir hins vegar að gaurinn hafi sloppið með skrekkinn og önnur kúlan hafi sem betur fer aðeins strokist við höfuð hans. Nú líður mér betur.

Svakalega er Kill Bill góð mynd maður. Þar hitta allar kúlur beint í mark.


| 12:57 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff