Það er allt morandi í Badabingum á netinu og þau eru sko ekki öll jafn kúl. Einhvern veginn hefði maður nú haldið að allir Badabing vefir og klúbbar væru athvörf töffara, glæpamanna og strippgella en svo er ekki.
Hér virðast til dæmis tvær gamlar piparjónkur halda úti vefverslun undir merkjum vorum. Skandall. Þessi klúbbur er e.k. póstlisti fyrir þá sem vilja djamma með kúlaðasta og sexíaðsta fólkinu í London. Ég er samt ekki alveg að fatta...
Fari maður á badabing.com dúkkar eitthvert ógeðslegt tölvukrapp upp og ekki skánar ástandið hérna. Alls staðar skal þessi fokkings fótbolti troða sér. Lógóinu stollið og allt. Þessir munu fá að lúlla með fiskunum.