Fimmtudagur, 02. október 2003
Helga Hóseassyni þótti það nú hálf klént hjá mér að yrkja ekki en þrátt fyrir prósadýrkun mína og langhundaskrif vildi hann endilega gefa mér bláu bókina Þrælar og Himnadraugar I þar sem hann hefur tekið saman kveðskap, skammir, skopmyndir og annað, eftir sjálfan sig og aðra, sem hefur gagnast honum i eilífðarbaráttunni gegn kyrkjunni, þrælunum og Ríkisvaldi íslenskra óþokka (RÍÓ).
Hér er smotterí af gnægtaborði hrópandans í eyðimörkinni. Kíkið líka yfir til Tótu og tékkið á hælætum úr tímamótaviðtali hennar við hetjuna.
(Myndin af Helga er fengin úr hinni mögnuðu heimildarmynd Mótmælandinn eftir Þóru Melsted og Jón Karl Helgason sem kemur í bíó í lok mánaðarins).
Þetta er í tilefni dagsins:
Þingsetar
Og þeirra afrek.
Þingdormsgerið þvargs í krá,
þýlyndt, vellar leingi;
arðinn ber það útá sjá
og það fellir geingi.
Þingsetar
Og þeirra afrek.
Alþingssetum er það tíðska
að dá veldi, kennt við blóð.
Blóðforsetar Bandóðsríkskra
bregðast heldur sinni þjóð.
Ríó og rögn þess
Fyrir brauð mér bjóða hall
beimar Himnagoða,
Krosslaf draug og krónufall
kykvendiskir boða.
Fyrir brauð mér bjóða hall,
blóði rjóða, pretta;
geingisnauð og gróðabrall
gætar þjóðar rétta.
Svo er ekki hægt að sleppa þessum, svona af því bara:
ÞRÆLAVÍSUR
Krosslafur er Kölska bróðir,
Krosslafur er beggja faðir,
Er að Désú eingin móðir;
á þá míga þrælaraðir.
Satans gerðum Súsi stjórnar.
Satan í Eldsvíti hafnar;
Alskota hann öllu fórnar,
upp í Himnaríki safnar.
Hentibón þræla:
Drep þú illa, Drottinn minn,
Désú næli í hræin,
upp þér still þú enn um sinn,
efldu þræla haginn.
Ríó
Ríkisvald íslenskra óþokka flytureitruð fíkniefni til Íslendinga í milljóna sinnum meira magni en nokkur önnur glæpaklíka, og drepur þá á þeim vísvitandi og árvisst, í margra hundraða tali. T.d. að taka drepur ríó 340 menn árvisst með reyktóbakinu einu saman!!!
Ríkisvaldið ræktar kvöl.
Reykur krabba glæðir.
Skipuleggur banvænt böl.
Brennivínið fræðir.
| 23:19 |