»  off record  »  No one can be told how Matrix Revolutions is...
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
No one can be told how Matrix Revolutions is...
Miðvikudagur, 29. október 2003

bellucci.gifBúinn að sjá The Matrix Revolutions með embargoi til 6. nóvember og má ekkert segja. Fékk að vísu stuttermabol úr myndinni með mikilvægum díalóg á maganum. Veit ekki hvort það er embargo á bolnum líka en þar sem ég er kominn í hann upplýsist það hér með að Neo segir: Because I choose to.

Get heldur ekki hamið mig yfir henni Monicu Bellucci. Húah! Hún er rosaleg. Held að það sé ekki hægt að segja neitt annað um hana en það sem ruslframleiðandinn Menahem Golan (eða var það Yoram Globus? Skiptir ekki máli báðir bjánar í þessu gyðingatvíeyki) sagði um Kim Basinger á meðan hún var eitthvað.
Ekki ætla ég að fara að dissa Vefsýnarverðlaunin bara vegna þess að ég var ekki tilnefndur (allt of æðrulaus til þess). Sýnist samt á niðurstöðunni að anti-jakkafataverðlaun Gneistans séu ágætis mótvægi þó þau séu sósíalískur einleikur (er eitthvað bogið við þetta?).
Björn Bjarnason er þó vel að sínum verðlaunum kominn og honum er hér með óskað til hamingju, enda ekki fair að taka það af Birni sem hann á inni fyrir. Mér skilst að hann hafi verið voða krúttlegur þegar hann tók við verðlaununum úr hendi samráðherra síns. Krefst þess þó að Gneistinn tjái sig um málið og upplýsi alþjóð um það hvort hann geti líka samglaðst "Steikta-Birni".

Náði að hitta Xinran yfir kaffibolla áður en ég tók rauðu pilluna. Afskaplega hugguleg kona og heillandi í viðkynningu. Hún sneri borðinu alveg við og bað mig að árita bókina sína. Ekki það að ég sé svona svaka heillandi heldur fær hún fólk sem hún talar við á ferðum sínum til að skrifa kveðju til Pan Pan sonar síns í þýðingarnar á þjóðtungum hvers lands og þannig getur mamma alltaf fært drengnum eitthvað spes þegar hún snýr aftur. Þetta er voða sætt og Pan Pan á von á góðum kveðjum frá JPV, Tóta og fleiri íslenskum öðlingum.


| 21:10 |
komment

Tóti!

Þú ert orðinn alltof sjálfhverfur. Það mætti halda að þú drægir fram lífið á því að éta skítinn úr naflanum á þér og horinn úr nösunum.

Skrifar bara um sjáfan þig.

Hertu þig upp drengur.

Þú getur betur en þetta.

Miklu betur.

Nr. 1 | thornsteen | 30.10.2003 | 1:38:13 | [+] |

Hvur djöfullinn, er ekki thornsteen risinn upp úr forgarði helvítis

Nr. 2 | AlanHudson | 30.10.2003 | 1:50:40 | [+] |

Er með ritstíflu þessa dagana.

Króníska.

Þarf að fá einhvern mér náinn til þess að skjóta hund og stela forláta jakka svo mér líði betur. Það hjálpaði Grady Tripp.

Kemst ekki óséður inn í bakherbergið úr héðan úr spilavítinu, en mun banka upp á von bráðar.

tc

Nr. 3 | Tony Clifton | 30.10.2003 | 17:53:46 | [+] |

Nei Loki, þú ert ekki sá eini. Að veita BB einstaklingsverðlaunin er svona eins og ef kommúnistaflokkurinn í gömlu Sovétríkjunum hefði fengið einstaklingsverðlaunin fyrir vefsíðu í Rússlandi.

Þetta er náttúrulega dæmi um þetta fyrirbæri í íslensku þjóðfélagi að allir vilja vera í sigurliðinu. Auðvitað þarf Björn stuðning sem einstaklingur: hann er af aðalsættum, í forystusveit stærsta stjórnmálaflokks landsins, nýkominn úr framboði til borgarstjóra, var menntamálaráðherra og er nú dómsmálaráðherra. Það er glæsilegt að veita svon rödd úr eyðimörkinni viðurkenningu. Og svo verður náttúrlega að taka til greina klassískar færslur eins og: "kl 21:00 fórum við Rut í Þjóðleikshúsið".

Thornsteen, þetta er alveg rétt með hann Tóta. Og það sem verra er: í ljós kemur að drengurinn hefur algert þrælsmentalitet. Legst bara á bakið og setur lappirnar sundur yfir því að BB fékk verðlaunin.

En hann er ekki hræddur að takast á við Málverjaaumingjana. Sei, sei, nei. Smá skammir frá hysterísku kellingunni, henni Jakob Bjarnar, og Tóti lætur þá fá það óþvegið. Og svo kallar hann: "Tóti Leifs, sjáðu mig, ég er laus við kútinn". Sorry, Tóti, en þú ert bara í grunnu lauginni.

En dettur Tóta að takast á við BB og önnur ráðandi öfl. Nei best að láta það bara vera. "Ég vil vera í liðinu sem vann kalda stríðið", segir Tóti.

Nú er mótmælandi Íslands kominn í tísku -- eftir að hann útbrann -- og bæði Fbl og Mogginn vilja viðtöl. Enginn skrifar um hvernig þessi maður var niðurlægður af fjölmiðlum í gegnum tíðina. Tóti og hans kóhort myndu náttúrlega ekki þekkja næsta mótmælenda Íslands þó honum væri troðið upp að andlitinu á þeim. Enga lúsera í vinningsliðið.

Nr. 4 | Organistinn | 30.10.2003 | 18:39:32 | [+] |

Þetta var smá æfing í agitation. Ekki taka þetta of alvarlega þó það er einhver sannleikur blandaður inní.

Nr. 5 | Organistinn | 30.10.2003 | 20:16:56 | [+] |

Þórunn er greinilega snillingur. Þetta blogg hennar og viðbrögðin við því hljóta að trjóna ansi hátt í íslenskri bloggsögu.

Nr. 6 | Organistinn | 30.10.2003 | 20:37:50 | [+] |

Þetta hreðjartak sjallana á fjölmiðlaflórunni er aðdáunarvert. Þeim tekst það sem KGB klúðraði.
Sumir hafa kannski einhverja ánægju af því þegar dómsmálaráherrann okkar er að hvæsa á fólk í blogginu, hella sér yfir borgarfulltrúa með upphrópunum um "lygabrigsl!" og "lýðskrum!" Tónninn í þessu hjá honum ber það með sér að þetta fólk hafi í raun engan rétt til að sitja borgarstjórnarfundi, hvað þá að það hafi rétt á því að opna munninn. Bjössi Batman svarar oft af hroka. Maður fær sömu ónotatilfinninguna og þegar Dabbi sagðist ætla að brjóta Baug. Krónprinsinn þolir ekki gagnrýni, ekki frekar en Kóngurinn.

Annars held ég held að Tóti hafi mikið dálæti á Stein Steinar. Leyfi mér að vitna í óútgefna ævisögu Tóta, skráða af sænsku mafíunni á Fréttablaðinu.

"Ég man vel þegar Steinn Steinar dó. Þá var fólk vælandi út um allan bæ; "Steinn Steinar var vinur minn. Hann var mikið skáld. Ég gaf honum fyrir kaffi." En mundi ekki eftir neinu öðru en að hann átti alltaf fyrir kaffi handa mér!

Nr. 7 | Refurinn Loki | 30.10.2003 | 21:07:03 | [+] |

Já nafnlausar blammeringar hafa heldur ekki mikið kredibility

Nr. 8 | Organistinn | 30.10.2003 | 21:12:41 | [+] |

Svona að lokum -- er það rétt að um þessar mundir sé að veita "netverðluan" á Íslandi?????

(hjálp, súrefniskútur óskast).

tc

Nr. 9 | Tony Clifton | 30.10.2003 | 21:23:40 | [+] |

He, he, Tóti, ertu að reyna að svæla okkur út úr nafnleysinu?

Það mætti athuga fyrir þig hvort það séu einhverjir landar sem hafa almennilegar reynslusögur að segja.

Nr. 10 | Organistinn | 30.10.2003 | 22:23:32 | [+] |

Það má sjálfsagt skemmta sér við margt í skamdeginu heima á Klakanum. Minnir á skemmtiatriði í sextugsafmæli sem svo er flengt framan í þjóðina, sem greinilega kollektívt ekki ræður sér fyrir kæti.
Eða kannski meira á litla getraun í 4 ára afmælisboði, þar sem allir gestir fá verðlaun fyrir þáttöku.

Ekki von að fólk sem hefur hringt síðustu daga að heiman hefur haft gífurlegan áhuga á veðrinu hér ytra. Reynt að moka yfir fréttirnar.

Vinur minn, Vernon Hardapple, spyr: var ekki kategoría fyrir hirðir?

Nr. 11 | Tony Clifton | 31.10.2003 | 5:34:18 | [+] |

TC, lestu ennþá yahú póstinn?

Nr. 12 | AlanHudson | 31.10.2003 | 16:03:08 | [+] |

Já það er komin hörð samkeppni í hirð kategoríunni. Greinilegt þó að þessir eru hræddir við hirð Tóta og Önnu, sbr: http://baggalutur.is/profile.php?mode=viewprofile&u=90&sid=3b7a6d12c4068dcee53ad0328ee88ab4

Nr. 13 | Organistinn | 31.10.2003 | 20:55:07 | [+] |

Gaman að sjá hvernig þetta nýyrði sem nú er á allra vörum; "sjálfhverfur", hreyfir við fólki og gerir einhvern veginn allt vitlaust.

Það ljótasta sem maður getur sagt um einhvern nú um stundir er að hann sé "sjálfhverfur".

Nú er fokið í flest skjól fyrir vestfirska strigakjafta ef þetta orðskrípi á að gefa tóninn í kúltiverðu svívirðinganívái framtíðar.

Nr. 14 | Thornsteen | 1.11.2003 | 23:13:07 | [+] |

Hvernig er það, er bjössavefnum ekki best lýst sem BORK?

Nr. 15 | Camper | 6.11.2003 | 22:09:06 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff