»  off record  »  Óheppni
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Óheppni
Mánudagur, 06. október 2003

natalia1.gifÞriggja mánaða edrúafmæli í dag. Ég er með ákveðið ritúal fyrir þetta 6. hvers mánaðar. Byrja á að fara á Litla ljóta andarungann og panta mér svart kaffi. Sit svo og stari út í tómið, reyki tvær sígarettur og hugsa um Bacardi. Fer svo í Nexus og kaupi mér comix bók.

Síðast keypti ég Essential Daredevil, svona doðrant með 25 fyrstu DD blöðunum endurprentuðum. Gaman að skoða hvernig hann var en skorturinn á Millereffectunum hefur orðið til þess að ég hef ekki klárað bókina. Nú keypti ég Danger Girl The Ultimate Collection. Komst í þessi blöð hjá Júlíu mágkonu fyrir löngu síðan og heillaðist alveg af Abbey Chase og vinkonum hennar. Blöðin kláruðust svo í miðju kafi, hnífagellan Natalía orðin svikari og ég skilin eftir í lausu lofti. Ég held enn með Natalíu og vona bara að allt fari vel hjá henni.

Annars byrjaði þessi edrúafmælisdagur með sorgarfréttum en þegar ég hringdi til að panta tíma í klippingu hjá Jóhönnu á Effect var mér tjáð að hún væri hætt. Þurfti mikið ærðuleysi til að fríka ekki út en ég hef ekki hleypt neinum í hausinn á mér undanfarið en Jóhönnu sem hefur líka séð mér fyrir slúðri og bara rukkað fyrir snyrtingu. Ég lokast líka alltaf í rakarastólnum og á í mesta balsi með að halda uppi samræðum við klippurnar sem leggja sig alltaf allar fram um að tala. Var löngu búinn að yfirstíga þetta hjá Jóhönnu og gat slappað af í klippingu en nú er ég kominn aftur á byrjunarreit.
Óli sem vann með mér á bensínstöðinni hringdi um helgina. Hitti hann síðast þegar við fengum okkur bjór á Players fyrir rúmu ári. Hann kenndi mér að drekka svart (og sykurlaust eins og karlmenn drekka það) kaffi á sínum tíma og kom mér líka upp á bragið með landann. Að vísu bara hans eigin uppskrift sem var betri en megnið af þeim vínanda sem er seldur í ÁTVR. Hann hugsaði líka vel um mig eftir að ég hætti hjá Essó og fór í og færði mér 2 lítra á mánuði sem hann kallði "námsstyrk".
Óli er því kannski skiljanlega eini maðurinn sem ég hef verið feiminn við að segja frá meðferðinni en hann tók þessu auðvitað með sinni stóísku ró. Sagði mér að hann umgengist lítið annað en alka núorðið, nokkra virka en flesta óvirka. "Sjálfum hefur mér nú tekist að sigla milli skers og báru og lít svoldið á alkóhólimsa eins og óheppni". Amen to that!
Óli er snillingur og peppaði mig svo upp með því að sér fynndist það bara karlmannlegt að horfast í augu við það að maður þyrfti að gera eitthvað í sínum málum og gera það svo.
Það að eignast vini eins og Óla á bensínstöð réttlætir næstum því allan viðbjóðinn sem maður þurfti að kyngja á þessum 11 árum. Þarf auðvitað ekki að taka fram að við erum báðir löngu hættir að dæla bensíni.
(sorrý Totil minn að ég skuli hafa misst þetta út í Minesota fílíng en ég varð að koma Óla og Natalíu að).


| 21:48 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff