Miðvikudagur, 22. október 2003
Myndin um Helga Hóseasson verður loksins tekin í almennar sýningar á föstudaginn. Það þarf auðvitað ekki að taka það fram að allir eiga að gó sí.
Ég er búinn að sjá hana á myndbandi en get ekki stillt mig um að fara á frumsýninguna annað kvöld. Full ástæða til að sökkva sér ofan í baráttu Helga á breiðtjaldi (svo er boðsmiðinn líka svo helvíti flottur).
Eitthvað fannst mér nú Kastljóssliðið kindarlegt þegar það fékk Helga í heimsókn áðan. Það er kannski skiljanlegt enda ekki neitt sérstaklega mikið rennirí af snillingum í gegnum settið hjá þeim. Vonandi er ég að klikkast en mér fannst þau einhvern veginn tala við manninn eins og hann væri ungabarn eða seníl gamalmenni. Kannski Sigmar og Læðan telji sig hafa þurft að hlífa áhorfendum við kallinum. Veit það ekki. Hvað sem það var naut hann sín a.m.k. ekki.
Þórhallur miðill nýtur sín, aftur á móti, greinilega í botn í sjónvarpssal. Þetta er nú samt verra hjá honum en ég hafði gert mér í hugarlund. Siggi Hall gæti gert þetta miklu, miklu betur. Ekki spurning. Skilurðu það? Skilurðu? Skilurðu? Voðalega eiga framliðnir vont með að tjá sig. Tala þeir alltaf í gátum eða fara þeir í einhvern Villtu vinna milljón gír þegar þeir droppa við á Lynghálsinum?
Mér fannst Bill Kill svo svakalega góð að ég dæmdi mig umsvifalaust vanhæfan til að fjalla um hana í Fréttablaðinu og Mausi gekk í málið. Menn eru hins vegar stöðugt að spyrja mig hvernig mér fannst og því hefur hér með verið svarað hér. So far eru allir sammála mér nema 1.
Já, plöggið? Nóg af því. Talandi um endurútgáfur. Þá er hann Jóhann Páll að gera næstum alla réttu hlutina í þeim efnum. Í fyrra vakti hann danska snillinginn Ole Lund Kirgegaard til lífsins með litprentaðri endurútgáfu á Gúmmí-Tarsan og nú er meistaraverkið Fúsi froskagleypir komið út hjá JPV.
JPV sjálfur sagði mér um daginn að hann hefði gengið frá því nýlega að þessar endurútgáfur muni halda áfram enda verði Kirgegaard að vera öllum aðgengilegur svo lengi sem byggð er á Íslandi.
Þá eru krakkarnir mínir ekki síður ánægðir með Herramennina (þess má geta í framhjáhlaupi að uppáhaldsherramaðurinn hans Bigga í Maus er Herra Hnýsinn) og þá er ekkert eftir annað en að finna réttinn á Mola sem Leiftur gaf út og komandi kynslóðum er borgið.
JPV er líka búinn að þjófstarta jólabókaflóðinu eina ferðina enn með helling af djúsí stöffi. Kafteinn Ofurbrók er auðvitað modern classic sem hefur lagt okkur feðgana að fótum sér og Doddi er þegar farinn að þráspyrja mig hvenær fimmta bók kemur út. Þori ekki að segja honum að það sé örugglega ár í það. Jóhanna er að fríka út á mér fyrir að vera ekki búinn að færa sér Artemis Fowl 3 á silfurfati þannig að það þarf ekki að fjölyrða um það að JPV er uppáhaldsbókaútgáfa krakkanna minna.
Helga frænka er búin að þýða The Lovely Bones eftir Alice Seabold sem ég las í kilju einhvern tíma. Flott saga um stúlku sem er nauðgað og myrt og afskipti hennar af jarðlífinu sem hún fylgist með úr einkahimnaríkinu sínu. Quality stöff.
JPV er líka uppáhaldsbókaútgáfa ákveðinna vinnufélaga minna ekki síst Þráins sem reykspólar upp sölulistana með einhvers konar sjálfum sér og þá er rannsóknarblaðamaður dauðans, Reynir Traustason, í startholunum með bókina um Lindu Pé. sem mér skilst að sé nokkuð krassandi á köflum.
Já, og svo allir fái nú notið sannmælis þá er ég búinn að lesa Áhrif Gumma Steingríms á mannkynssöguna í próförk og hann svíkur ekki. Það er að vísu Forlagið sem gefur bókina hans út en það er ekki aðalmálið. Maður prísar sig nú bara fyrst og fremst sælan fyrir að Mikki Torfa sé ekki með í atinu í ár. Þetta verður nógu andskoti rafmagnað þegar þessir þrír verða komnir á hlaupabrautina, með Kollu Bergþórs á hliðarlínunni. Úff!
Plögg dagsins var í boði uppgjafablaðamanns sem er að bíða eftir feitu PR djobbi.
| 22:35 |