»  off record  »  Púkinn á fjósbitanum
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Púkinn á fjósbitanum
Þriðjudagur, 28. október 2003

natbbing.gifSpjallverjafarsinn veður stöðugt betri enda slæðingur af ótrúlega sensitívu liði sem þenur sig á Málefnin.com. Þeir nojuðustu viltust úr sandkassanum þegar þeir eltu stebbafr. yfir á Press.is og einhver reytingur er þar enn að blása. Þetta er eins og krabbamein þetta helvíti.

Undarlegt að enginn sé búinn að koma auga á stóru fléttuna en þegar Málefnin og Press.is kafna á öllu krappinu snúa týndu synirnir aftur heim á Vísi þar sem GWBear situr einn og bíður.
Tóti Leifs hlýtur að vera hress með mig eftir að ég hreyti smá skít í málverjana á Press.is þar sem gamli góði hrokinn og mannfyrirlitningin blossuðu upp um leið og ég byrjaði að skrifa. Hressandi. Spurning um að halda afturbatanum áfram og fá sér bjór á Grandrokk? Eitthvað hefur verið kvartað yfir orðbragðinu en fífl eru fífl. Það verður bara að segja það eins og er.

Voðalega er farið illa með konur í vinabæ íslenskra ráðamanna í Kína. Ég er að lesa bældar raddir dætra landsins og græt mig í svefn kvöld eftir kvöld. Það er frétt.

Annars eru stærstu tíðindi dagsins að Natalía hefur tekið skjáborðið yfir, og bókin hans Gumma er komin út, léttleikandi og læsileg eins og við var að búast.

Farinn á Selfoss.
Skák og mát.


| 20:42 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff