Þriðjudagur, 21. október 2003
Hrekkjusvín og eineltispúkar hafa flæmt stebbafr. út af spjállrásargeðdeildunum sem kenndar eru við Innherja og Málefni (þetta er dramatískur þráður). Þetta hlýtur að vera mikið reiðarslag þar sem hægri maðurinn norðan heiða hefur verið prímus mótorinn í pólitísku vefþrasi um árabil. Hann hefur of silgt móti straumnum og elt ólar af sjúklegri elju við hvert einasta aulakomment sem menn hafa baunað að honum. Það hlaut þó að koma að því að ofureflið bugaði Stebba sem hefur kastað (að eigin sögn) hinstu kveðju á illa innréttaðar (vinstriskepnurnar væntanlega) á spjallrásunum.
Stebbi er þó greinilega ekki búinn með tjáningarkvótann þar sem hann er þegar byrjaður að taka undir með atvinnumannagenginu á spjallvef Blaðamannafélagsins. Held þó að blessaður karlinn sé að fara úr öskunni í eldinn enda blaðamenn og fjölmiðlafólk, yfirleitt, vont fólk; sjálfhverft, eigingjarnt, athyglissjúkt og að drepast úr hroka og þolir allra síst að einhverjir amatörar séu að gera sig breiða á leikvelli stóru strákanna.
Undanhald Stebba og nýjasti áfangastaður hans hafa að vonum verið rædd nokkuð í bakherbergi BadaBing! og þar lét einn fastagesturinn þessi orð falla:
Þetta er nú eitt það spaugilegasta sem ég hef séð í íslenskum netheimum. Stebbi hætti sér inní búrið hjá uber-uber-uber-besserwisserum íslands.
Say no more
Organistinn læddi sér inn á press.is á eftir Stebba og óskaði blaðamönnum til hamingju með nýja félagann. Held nú samt að það fari kaldur hrollur um hetjurnar enda fyrirsjánlegt að allur klepparaskarinn ryðst inn á eftir Stebba enda bullyar ekki vanir að sleppa djúsí fórnarlambi. Málefnin munu í kjölfarið lognast út af um leið og vitræn umræða drepst á press.is. Var ekki verið að tala um að loka á þá sem eru ekki í BÍ? Spurning að drífa í því Palli minn? we don´t need this shit.
| 23:50 |