»  off record  »  Same old scene...
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Same old scene...
Sunnudagur, 12. október 2003

mmc.gifÉg er í nostalgíukasti og fór í gegnum geisladiskamöppurnar mínar í gær og náði í slatta af tónlist sem ég hef ekki hlustað á árum saman. Er núna að hlusta á Bryan Ferry og Roxy Music sem ég ef nánast ekkert spilað síðan ég rúntaði á elsku gamla Galantinum mínum í fyrndinni og reyndi að krækja í Önnu.
Það var einhver undarleg Roxy Music þráhyggja sem skaut skyndilega upp kollinum og fékk mig til að dusta rykið af gömlu CD-unum en þetta fylgdi samt líka með:

Terminator2 sándtrakkið (best að vera með soundtrakk í eyrunum ef maður er að skrifa en þarf að hugsa á meðan),
Pulp Fiction (Tarantino kann sko að velja tónlist. Menn greinir að vísu nokkuð um gæði Kill Bill Vol. 1 en miðað við allt ofbelið ætti enginn að verða svikinn. Empire gefur 4 af 5 og finnur helst að því að það er enginn snappí Tarantino díalógur í myndinni. Það stendur allt til bóta í Vol.2),
The Best of Mike Oldfield (sekkjapípur og Five Miles Out eru málið),
The Very Best of Cat Stevens (Sad Lisa, Father and Son og fleiri góðar ávísanir á þunglyndi),
Queen Greatest Hits (this goes way, way, way back),
Monty Python - The Final Rip Off Album (say no more, wink, wink-nod, nod),
Woddy Allen (standup eitthvað),
Duran Duran - Greatest (jamm, þeir eru greitest 2000 miðar seldir á 5 mínútum),
Gary Moore- Wild Frontier (inniheldur þjóðsönginn Loner og svo er maður auðvitað Over the hills and far away),
Betty Blue sándtrakkið (klassík),
The Doors (4 laga CD eina sem er eftir. Búinn að brjóta 2 umganga af The Best of The Doors á fyllyríum),
An American Prayer (ljóðalestur Eðlukóngsins við undirleik eftirlifandi dyranagla),
Andre Dice Clay - 40 Too Long (Jack be nimble, Jack be quick. Jack burnt off his fucking dick),
The Best of Nick Cave (skýrir sig sjálft),
Herzeleid (ómissandi).

Þetta er nú ólíkt gáfulegra en þessir 100 atriðiumsjálfanmig listar sem tröllríða öllu þessa dagana.

Þetta ætla ég að hlusta á næstu vikurnar á meðan ég ét blandaðan Appoló lakkrís, sem er nýja fíknin mín, í gríð og erg. Er samt að spá í að færa mig yfir í eitthvað sem heitir Djúpur og Þóra Karitas kynnti mig fyrir um daginn. Deffinetlý pótensíal fíkniefni.


| 23:02 |
komment

Virka svona silfurlitaðir Galantar vel á kvenfólk?

Nr. 1 | AlanHudson | 13.10.2003 | 1:27:36 | [+] |

Ég held að liturinn skipti verulegu máli. Þetta fór ekkert að ganga hjá mér fyrr en pabbi keypti silfurlitaðann volvó sællar minningar.

Nr. 2 | AlanHudson | 13.10.2003 | 15:23:22 | [+] |

Nei. Volvóinn kom reyndar ekkert við sögu í mínum kvennamálum - en samt var það ekki fyrr en sá góði bíll kom til sögunnar að þetta fór að ganga.

Frú Hudson fannst á Hvannadalshnúki einn góðan páskadag fyrir mörgum árum. Ég held að enginn maður hafi haft jafn mikið fyrir því að ná sér í frambærilegt kvonfang.

Nr. 3 | AlanHudson | 13.10.2003 | 15:50:34 | [+] |

Það er löng saga, ég er hræddur um að internetið dugi varla til að segja hana.

En nei, engin björgunarsveit, ég á bara svo fína gönguskó. Svo er algert thrill að standa þarna uppi. Þú ættir bara að prófa.

Nr. 4 | AlanHudson | 13.10.2003 | 17:53:44 | [+] |

Það dæmi gæti ekki klikkað. Jafnvel ekki þó hvergi væri kvenmann að finna í mörghundruðkílómetra radíus. En þá yrði að vera sóllúga.

Nr. 5 | AlanHudson | 13.10.2003 | 18:59:52 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff