Sunnudagur, 26. október 2003
Viðtalið við símavændiskonuna hefur að vonum vakið athygli. Flestir sem ég hef heyrt í eru bara nokkuð hressir með það og einhverjir hafa óskað mér til hamingju með að hafa nú loks tekist að sameina vinnuna og áhugamál mín og að vera farinn að veita samtölum mínum við "vinkonur mínar" beint inn á síður blaðsins.
Ég gerði mér þó alveg grein fyrir að þetta myndi stuða einhverja enda viðhorf stúlkunnar býsna twisted, sérstaklega í garð feits fólks. Einn lesandi "gat ekki hamið" sig og er búinn að senda mér tölvupóst þar sem hann segir:
Eftir að hafa lesið þessa grein sem mér þótti með afbrigðum léleg áttaði ég mig á því að ég hafði verið að innbyrða þvílíkan sora að ég man ekki eftir öðru eins í fljótu bragði í íslensku blaði.
Vitaskuld eru það ummæli stelpunnar um feitu samstarskonur hennar sem valda manninum mestri gremju og að ég skuli hafa séð ástæðu til að birta þau. Ég lít þetta auðvitað öðrum augum og er ekki mikið að leggja persónulegt mat á hvað viðmælendur mínir eigi og eigi ekki að segja og hef hingað til ekki talið það hlutverk mitt að hlífa fólki við skoðunum viðmælaenda minna hvort sem þeir eru hægri eða vinstrisinnaðir, heita Helgi Hóseasson eða stunda símavændi.
| 17:42 |