Föstudagur, 17. október 2003
Ég hef svo sem ekki lagt mig niður við það að koma framsóknarmönnum til hjálpar en ætla samt að skera Halldór Ásgrímsson, verðandi forsætisráðherra, úr snörunni.
Einhverjir vondir menn vilja nú hanka hann á gömlum ummælum um öryrkjalögin og það að ríkisstjórnin ætti öll að segja af sér ef þau fengju ekki staðist. Það þýðir lítið að ætla að herma þetta upp á Dóra núna enda búið að kjósa í millitíðinni og ný ríkisstjórn er tekin við. Þá má líka skella þessu öllu á Sólveigu Péturs og Tómas Inga Ollright. Þetta er milku smekklegri lausn en, sú sem Guðni fór, að segja að það sé ekkert að marka það sem Halldór segir, þó landbúnaðarráðherrann hnyttni hafi hingað til ekki orðið uppvís að því að fara með fleipur.
| 10:01 |