»  off record  »  Wall of fame og verðlaun ýmis konar
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Wall of fame og verðlaun ýmis konar
Fimmtudagur, 16. október 2003

satans2.gifVið Jakob erum með svona wall of fame þar sem við hengjum upp myndir af okkur með eðalviðmælendum. Jakob reið á vaðið með frábærri mynd af sér með uppáhaldsráðherranum sínum, Guðna Ágústssyni, og ég fylgdi á eftir með Helga Hóseassyni og Hver skapaði sýkla skiltinu. Þá þurfti Eiríkur endilega að trana sér fram og er búinn að toppa okkur með mynd af sér og Dorrit. Erfitt að eiga við hann EIR og þessu er sjálfhætt.

Þeir sem voru sniðgengnir af vefverðlaunum Gneistans fá nú second chance þar sem Vefsýnarverðlaunin eru á næsta leyti. Þetta hljóta að vera jakkafataverðlaunin sem Gneistinn stofnaði verðlaunin sín til höfuðs og því ætti að vera friður fyrir mussuhippum og kommúnistum þarna.
Óskabörn allra femínista tilveran.is og batman.is telja sig a.m.k. geta gert tilkall til titilsins Besti afþreyingarvefurinn. Þeir um það. Ótrúlegt mikilmennskubrjálæði ríkjandi á þessum fokkings tenglasöfnum. Strik.is vann þessi verðlaun á meðan allt lék í lyndi (les. Tóti, Hrafn, Laugurinn, Egill Helga og fleiri skrifuðu þar) en það má svo sem vel vera að linkasöfn flokkist sem afþreyingarvefir á þessum póst-netbólutímum.

Það er aftur á móti þekkt staðreynd að BadaBing! er flottasti, óútreiknanlegasti og best skrifaði einstaklingsvefurinn og þó Gneistanum hafi yfirsést þetta þá er ykkur frjálst að leiðrétta hann hér.

Gneistinn sagði okkur frá því um daginn Sigurður Kári væri algengasta leitarorðið sem drægi fólk á síðuna sína. Heldur finnst mér það klént og bera vott um undarlegar hvatir þeirra sem leita á náðir Gneistans á netinu. Orðin Klám og thehun.com skiptast alltaf á um toppsætið á BadaBing! fyrir utan það að Hrafn Gunnlaugsson skaust beint á toppinn eftir að Píslarsaga sófarottu var lesin í útvarpinu. Annars lítur Topp 20 listinn svona út í dag:

1. thehun.com
2. Stella Blómkvist
3. erótík
4. Hugh Grant
5. ogvodafon
6. klám.is
7. vodafon
8. ísland í dag
9. edduverðlaunin
10. erotik
11. hommi
12. klám
13. úrklippur
14. Angelina Jolie
15. Michael Jackson
16. Morðið í Alþingishúsinu
17. Sverir stormsker
18. mávahlátur
19. rómantískt
20. Brjálæðingur

Það sem er öllu verra og fer ósegjanlega í taugarnar á auglýsendum og kostunaraðilum að einungis 56% umferðarinnar um BadaBing! kemur frá Íslandi.


| 0:11 |
komment

56%? Ég vissi ekki að það væru svona margar tölvur á Íslandi.

Nr. 1 | AlanHudson | 16.10.2003 | 0:34:16 | [+] |

Done.

Þú átt skilið bæði útlits- og einstaklingsverðlaunin, en Organistinn kaus þig fyrir allt (þú ert fyrirtæki líka -- rétt?) og frá öllum tölvum sem hann hefur ráð yfir.

Nr. 2 | Organistinn | 16.10.2003 | 1:40:15 | [+] |

"Man måste hela tiden jämföra!"

Nr. 3 | Tony Clifton | 19.10.2003 | 20:35:45 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff