off record nóvember 2003
a long time ago...
|
 |
Tími til að deyja
Sunnudagur, 30. nóvember 2003
Ég hef hingað til verið laus við alla aldurskomplexa og fílaði það til dæmis alveg í botn að verða 30 ára og man að Hrafn óskaði mér þá sérstaklega til hamingju með að hafa lagt þennan óhjákvæmilega áratug sjálfsvorkunnar og aumingjaskapar að baki.
Það var búið að hóta mér skalla upp úr fermingu þar sem afi var orðinn sköllóttur 21 árs en ég er enn með helling af hári þó kollvikin fari hækkandi og þar sem amma var lengi vel minn besti og skemmtilegasti drykkjufélagi get ég ekki séð að ellin sé alslæm en ef Rás2 er orðin tvítug þá hlýt ég að vera orðinn helvíti gamall.
Fann feigðina fyrst læðst að mér um daginn þegar ég sá Blondie myndband á einhverri poppstöðinni en þar kom fram að lagið væri rúmlega 20 ára. Man það eins og gerst hafi í gær þegar það var vinsælt og þegar Gísli Marteinn hætti sér í beina útsendingu í gær til að fagna afmæli Rásar2 ákvað ég að það væri tímabært að fara að borga aftur af líftryggingunni.
það eina ánægjulega við þessa veislu var að Brain Police spilaði og Gulli var svalur. Hann er greinilega kominn í elítuna þar sem hann fær að spila hjá Gísla Marteini með Stuðmönnum, Sálinni og Bubba. Það er hins vegar stór spurning hvort það sé mjög rokkað að vera í sama prógrammi og lúin gamalmenni sem sökka en Brain Police rokkar anyway.
|
|
 |
 |
Hvar er húfan mín?
Laugardagur, 29. nóvember 2003
Sorry Homer, I´m a coward now. Like all recovering alcoholics.
- Barney Gumble.
Elítistinn Kolla Bergþórs er búin að banna mér að nota bleiku PowerPuff húfuna mína, segir að ég sé eins og barnaníðingur með hana og hefur boðist til að prjóna á mig almennilega húfu. Það er óneitanlega stíll yfir því að spóka sig með húfu gerða af gagnrýnandanum sem dirfðist að gefa bókum 
Eddu útgáfu láðist að bjóða mér í partýið sitt annað árið í röð þannig að ég veit ekki hver barði Tótu pönk en tel eðlilegt að ætla að þar hafi Gummi Steingríms verið á ferð (við báðum hann a.m.k. um að lemja sem flesta þarna), miklu frekar en dr. Ármann.
Annars skilst mér að Gummi hafi aðalega þurft að sannfæra fólk í þessu giggi um að við á Helgarblöðunum værum ekki rakin illmenni sem skrifuðum ekki stakt orð án þess að annarlegar hvatir lægju að baki. Þeir sem eru uppteknastir af sjálfum sér ganga víst svo langt að halda því fram að við séum með viðkomandi á heilanum. Magnað! Svo drögum við líka taum JPV, þannig að ég skil ekkert hvað við vorum að birta opnuviðtal við Arnald, síðuviðtal við Rut, Einar Kárason , David Attenborough og fleiri.
JPV sá þrátt fyrir þessi axarsköft sóma sinn í að bjóða mér í partýið sitt á föstudaginn og ég nennti að fara þó ég sé hættur að drekka. Hrafn gengur alltaf að mér vísum í þessum partýum og öfugt þannig að ég plottaði mest með honum en tók samt við fyrirmælum mínum um hvernig bókaumfjöllun næstu viku skuli háttað. Sá engan sem mig langaði að berja. Hlýtur að vera batinn.
|
|
 |
 |
Með snert af karlmennsku
Miðvikudagur, 26. nóvember 2003
You kill Rock and you rape Roll. Keith Richards is rolling over in his grave and the friggin guy ain´t even dead yet!
- Ford Fairlane
Ég setti nagladekkin undir Ljónið á veginum með berum höndum alveg sjálfur í fyrradag. Fékk rosalegt kikk út úr því að finna svitadropana leka af enninu ofan í augu, að ég tali nú ekki um nautnina sem fylgdi því að þurrka olíborna drulluna af svörtum fingrunum í gamla tvistdruslu og strjúka svo framan úr mér með tætlunum. Fann bensíntittinn í mér aftur og brunaði beint á næstu Essó stöð þegar ég var búinn að fullherða alla boltana. Mældi olíuna og frostþolið og bætti frostvara á rúðupissið. Það heitir nefnilega frostvari þetta sem fer á pissið, frostlögur sem fer á vatnskassann og ísvari sem fer í bensínið en það er tómt rugl að nota svoleiðis. Fer illa með blöndunginn til lengdar. Langbest að vera alltaf með tankinn fullan, þá hélar hann nefnilega ekki að innan sjáiði til.
Húah! I´ve still got it.
Er enn svartur undir nöglunum en mesta matsjóið lak af mér morguninn eftir þegar ég setti upp bleiku Power Puff Girl húfuna mína og þrammaði út í strætóskýli. Það er voða mikið hlegið af húfunni minni en hvað get ég sagt? Ich bin ein Feminist!
Talandi um femínista þá er Tóta pönk upprisinn og hefur þess vegna brotið utan af sér svigana hérna. Verst samt að kommentin eru horfin þar sem lesendur hennar voru upp til hópa ekki fífl. Ekkert mál að dílíta hinum perrunum jafnóðum. Þá sakna ég líka reiðu færslunnar um Fréttablaðssamsærið. Það er ábyrgðarhlutur að pósta eldfimar færslur sem starta hressum deböttum og láta þær svo hverfa. Enga bakþanka á blogginu.
En talandi um töffara. Djöfull er Laugurinn sjálfur vígalegur á forsíðu Undirtóna, umkringdur hinum rokkhundunum í Brain Police og með fáklæddar eðalgellur í forgrunni. Laugurinn er snillingur, by the way.
Sverrir Hermannsson er líka töffari af guðs náð. Hálf þunnur þrettándi samt Skuldaskilabókin og engar stórar bombur að springa (góða stöffið virðist háð bankaleynd) en kjafturinn á kallinum er alveg eðal. Mér sýnist hann að vísu ekki vera að ná sama flugi og hann gerði í öllum snilldarmoggagreinunum sem hann dældi (J´ai accuse!) út þegar hann var sem reiðastur en það er samt ekki annað hægt en að taka undir með stríðsöskrum þegar hann hjólar í Framsóknarflokkinn. Hatur Sverris á fyrirbærinu er svo einlægt og ekta að maður kemst ekki hjá því að heillast með.
Einhvern tíma hafði Framsókn tilgang en nú snýst öll hans tilvera um að vera frekasti njálgurinn sem borast að kjötkötlunum.
|
|
 |
 |
Til varnar Kristjáni...
Þriðjudagur, 25. nóvember 2003
Friðrik Erlingsson, krefjandi, drullar yfir Kristján Kristjánsson í Kastljósinu í The Sunday Times þeirra á Mogganum. Reiðilestur Friðriks er innblásinn af viðtali sem Kristján tók við dýravininn David Attenborough og Friðrik er harður á því að Kristján sé handónýtur spyrill þar sem hann hafi ekki komist lönd né strönd með breska sjéntílmanninn.
Friðrik hefur sjálfsagt aldrei þurft að tala sjálfur við Attenborough og telur manninn líklega vera jafn leiftrandi skemmtilegan og hressan og hann er í dýralífsþáttunum sínum. Það virðist að vísu bara vera blekking eins og svo margt annað á skjánum. Sjálfur held ég að ég hafi ekki rætt við erfiðari viðmælanda en Attenborough og hef ég þó dílað við þá nokkra. Attenborough var stuttur í spuna og svaraði með eins atkvæðisorðum og þau þurfti að toga upp úr honum með töngum. Kannski er hann ekki old fart og er æðislegur í svörtustu Afríku en á Íslandi var hann álíka skemmtilegur og Seinfeld og Robbie Williams.
Ég var búinn að kreista 60 dálksentimetra út úr honum áður en hann mætti í Kastljósið og ég dauðvorkenndi Kristjáni að vera með hann í sjónvarpi og fannst hann standa sig eins og hetja.
Bandaríski kvikmyndaleikstjórinn Eli Roth er hins vegar með kjöftugustu og skemmtilegustu mönnum sem ég hef talað við og ég þurfti að þagga niður í honum, frekar en hitt. Ég er búinn að sitja fyrir Eli alveg frá því ég skrifaði fyrst um húðsjúkdóminn sem hann fékk á Selfossi og varð kveikjan að tryllinum Cabin Fever. Náði svo loksins í skottið á honum með hjálp Ísa hjá Kvikmyndasamsteypunni.
Eli talaði svo mikið að mér var gert að stytta hann, nánast um helming, svo hann kæmist fyrir í Fréttablaðinu. Mesti bíó nördisminn fékk því skiljanlega að fjúka en áhugasamir geta lesið viðtalið í heild hér.
Leoncie sendi mér póst í gær en hún er síður en svo sátt við það hvernig Gísli Marteinn klippti spjall þeirra fyrir útsendingu. Leoncie er mikið niðri fyrir, eins og venjulega, og sakar Gísla Martein um ritskoðun og tilraun til að blekkja skattgreiðendur landsins.
Sjálfur skil ég ekki allt bréfið en það er svohljóðandi:
Sæll Gísli
Ég vil gjarnan vita, af hverju ég var ritskóðað á laugardagskvöld með Gisla Marteinni ???
Er þetta kallað Lyðveldisríki Gísli? Þú spurði mig hvað skeiði við menntamálaráðuneytið?
Ég svaraði : "Einhverju sagði við mig að senda bréf til Menntamáláráðuneytisins, og svarið sem ég fékk frá þeim var: "Þú færð engann styrk,enga peninga að skyggja á poppara okkar." Hjálmar Hjálmarsson sagði.......Björk og Sigurrós. "Og ég sagði svona er það með Menntamálaráðuneytið"
Hvers vegna var svo nauðsynlegt að ritskóða þetta, sérstaklega þetta??? You think you'll can fool the tax-payers in this country forever?? Þú lífir í fortiðinni Gísli, meðan ég er að lífa í Nútið og framtið. Þetta skot um DV.
Með von um skjótt svar............ Icy Spicy Leoncie.
|
|
 |
 |
Bullseye!
Sunnudagur, 23. nóvember 2003
Rakst á þetta comixnördapróf hjá Hullboy. Hann fékk rétta niðurstöðu og ég líka, þannig að þetta hlýtur að vera að virka. Spider er flottasti blaðamaður ever og er sko minn maður. Spider is THE journalist of the future and he kicks ass. Spider og Bógí. Ekki spurning.
 You are Spider Jerusalem.
Spider is THE journalist of the future. He smokes, he does drugs, and he kicks ass. The drugs are going to eventually kill him but not before he gets his way. And his way is the demise of the failed American dream. Although full of hate, he cares about his city. All he wants to bring the world is truth. Spider Jerusalem, conscience of the City. Frightening thought, but he's the only one we've got.
What Gritty No Nonsense Comic Book Character are You? brought to you by Quizilla
|
|
 |
 |
Söltuð vegamynd
Miðvikudagur, 19. nóvember 2003
Það var stappað á frumsýningunni á Salt. Fjöldi útsendra boðsmiða hefur líklega miðast við Háskólabíó en myndin var hins vegar sýnd í Regnboganum. Þetta er auðvitað ekkert einsdæmi og ég lét mig til dæmis hafa það að sitja í tröppunum á Lalla Johns á sínum tíma en það var allt í lagi enda Andrea Gylfa í banastuði í næstu tröppu fyrir ofan. Leikstjórinn Bradley Rust Gray kom alveg af fjöllum þegar ég færði honum kveðju frá Eli Roth en það er önnur saga. Nennti ekki í frumsýningarpartíið í boði sendiráðs Bandóðríkjanna á Borginni enda gulrótin eina sem dregur mann á þannig samkomur forboðin. Ég geri ráð fyrir að tapa ekki undir 200 þúsund krónum í fríum drykkjum í nóvember og desember. Djöfuls óheppni að vera alki.
|
|
 |
 |
Hver ert þú svo?
Mánudagur, 17. nóvember 2003
Ég er plagaður af hinum ýmsu atvinnusjúkdómum blaðamanna. Það er sko engin allsherjarlausn að hætta að drekka. Eitt versta blaðamannaheilkennið er fullkomið áhugaleysi á fólki ef það leynist ekki í því saga eða frétt. Það að tala við einhvern bara til þess að tala við hann er þá hin versta tímasóun og maður forðast allt slíkt í lengstu lög.
Þetta er vont þar sem það er oft skemmtilegasta og besta fólkið sem hefur ekkert að segja sem á endilega erindi á prent samkvæmt þessum stöðluðu viðmiðum um hvað telst fréttnæmt.
Ég er geðveikislega minnugur á andlit og nöfn viðmælenda og annars efniviðs en gleymi öðru fólki sem ég hitti iðulega áður en það nær að klára að kynna sig. Þetta er var orðið verulega vandræðalegt þangað til ég datt niður á lausnina í útgáfuteitinu hans Gumma um daginn. Ég er semsagt kynntur fyrir einhverjum sem ég á að þekkja og gapi eins og fífl. "Hvað er þetta maður. Þið hafið oft hist". "Ha, nú, já. Var ég fullur? " Og svo verður allt voða fyndið af því ég var bara í blakkáti og það er svo sætt og skemmtilegt hvað ég tala opinskátt um það að ég hafi verið bytta. Ég er auðvitað búinn að vera edrú í rúma 4 mánuði þannig að þetta fer að hætta að virka en í millitíðinni hefur mér gengið ágætlega að temja mér aftur áhuga á fólki.
Fyrsti dagurinn í gamla DV draugahúsinu sem heitir nú Fréttahúsið var sæmilega slæmur. Komst ekki á Netið fyrr en upp úr hádegi og fékk símalínu enn seinna. Það stendur einhvers staðar að blaðamaður án síma er eins og kuntulaus hóra. Mikið til í því. Ég hef alltaf reynt að vera lúxusmella í þessum bransa.
Leoncie viðtalið er uncut hérna (fyrir þá sem kynnu að hafa áhuga). Ekkert krassandi varð útundan en plássið í blaðinu setur mér ákveðin takmörk sem ég get brotið af mér á vefnum.
|
|
 |
 |
Hryllingshelgin
Sunnudagur, 16. nóvember 2003
Byrjaði hryllingshegina á Texas Chainsaw Massacre endurgerðinni. Gerði mér engar vonir og get því ekki verið annað en sáttur. Áður en myndin byrjaði kom svona disclaimer upp á tjaldið eins og er alltaf á undan myndum á vídeói nema í stað þess að bann væri lagt við fjölfjöldun myndbandsins stóð á tjaldinu að fjölföldun þessarar bíómyndar væri óheimil. Þeir sem hugsanlega væru með upptökuvél í bíóinu mættu því eiga von á allt að 10 ára fangelsi. Gaman að því.
Hélt áfram að reyna að hræða mig með Deathwatch á laugardeginum. Gerði mér miklar vonir og varð að sama skapi fyrir vonbrigðum.
Fór í Laugarásvidéo eftir bíó. Þetta er pottþétt besta leigan í bænum. Gæti eytt a.m.k. viku þarna bara í að skoða hulstrin utan af allri snilldinni sem leynist í hillunum. Gat ekki stillt mig um að leigja upprunalegu Texas Chainsaw Massacre. Hún er öðruvísi, betri og miklu fyndnari en rímeikið og eldist bærilega.
Hlutverk Leatherface reynir svo sem ekki mikið á Gunnar Hansen en það breytir engu um það að hann er án efa frægasti Íslendingurinn í bíóbransanum og þó Harrison Ford og Liam Neeson séu frægari en nóboddíin sem léku í TCM þá á Ingvar Sig. enn nokkuð í land enda engin hætta á að K-19 verði endurgerð eftir 29 ár.
|
|
 |
 |
Gengisfall dauðans
Laugardagur, 15. nóvember 2003
Pakkaði öllu draslinu mínu saman á föstudaginn, merkti tölvuna og nú er allt heila klabbið komið upp í Skaftahlíð. Ég á eftir að sakna Suðurgötunnar illilega ekki síst þar sem ég get ekki lengur labbað í vinnuna og missi af morgunsígarettunni í Kirkjugarðinum.
Verst af öllu í þessu er svo að Jakob missir bilastæðið mitt. Það er sko ekkert grín að finna stæði við Suðurgötu 10, nema maður sé "blaðamaður mánaðarins" þá hefur maður sérmerkt stæði í portinu til ráðstöfunar í mánuð. Geggjað!
Jakob fór í harða kosningabaráttu fyrir mína hönd til þess að geta svo eignað sér stæðið þar sem fótgangendur hafa auðvitað ekkert við bílastæði að gera. Þetta tókst hjá Jakobi og stæðið er mitt þó það hafi tekið dómnefndina viku að komast að þessari augljósu niðurstöðu þannig að það var allt útlit fyrir að bílastæðismánuðurinn minn (Jakobs) yrði bara 3 vikur.
Það eina sem hefði getað eyðilagt þessar vikur fyrir vini mínum er sú árátta EIRs að líta á sig sem blaðamann aldarinnar, bæði þeirrar sem er nýliðin sem og þessarar, þannig að hann parkerar Snædrottningunni alltaf í stæðinu. Það kom þó aldrei til átaka þar sem DV var skyndilega keypt og EIR vippað þangað á nó tæm.
Ég eignaðist því ótrúlega marga vini þegar það spurðist út að ég ætti stæðið og EIR myndi ekki slá eign sinni á það en ég missti þá alla um leið og það upplýstist að ég hefði gefið kosningastjóranum mínum það eftir.
Ólánið var þó rétt að byrja og nú þarf Jakob ekki einu sinni að vera vinur minn lengur þar sem stæðið er verðlaust og ónothæft og ekki er hægt að flytja það með enda allt morandi í stæðum á nýja staðnum. Stæðið eftirsótta féll því hraðar í verði en deCODE bréf og er ekki malbiksins virði frekar en nafnbótin sem fylgdi því.
|
|
 |
 |
Maðurinn sem drap þjónustuna
Föstudagur, 14. nóvember 2003
Óli er farinn að láta í sér heyra á kommenntunum. Það er geggjað enda maðurinn andskotanum gleggri, dómharðari og skemmtilegri. Ég gæti bloggað nokkur gígabæt um árin sem við eyddum saman í tilgangsleysi bensínafgreiðslunnar en þar sagði Óli hinum ógeðfelldu systrum Markaðssetningu og Þjónustu stríð á hendur og myrti þá síðarnefndu á eftirminnilegan hátt með 20" skrúfjárni eftir að hafa náð henni á hlaupum. Smáborgarar, Lottósjúklingar, leigubílstjórar og önnur fífl fengu líka ósapart að kenna á beittu háði hans. Skrílinn slapp að vísu við skrúfjárnið og þjónustan er ódrepandi blóðsuga sem reis upp strax aftur. Halli gamli sem var á (vondu)vaktinni (fengum sko út úr því að neita að geyma ávísanir og skrifa hjá Kópavogsskrílnum) með okkur sagði að þetta hefði allt verið miklu betra í gamla daga þegar þjónustan var bara í kirkjum og hóruhúsum.
Annars hljóta viðskiptavinir á bensínstöðvum að hafa snarbatnað í skapinu eftir að þetta Internet kom til sögunnar þar sem nú fá öll heimsins fífl útrás fyrir komplexana, heimskuna og gremjuna á spjallþráðum. Nú er einn ein þjóðarsálarsíðan komin upp. Grímulaust Málefna rip off sem heitir Alvaran.com (jú gara bí kiddíng). Þetta er gott og blessað fyrir viðkomandi en haldi kleppararnir áfram að skipta sér svona endar þetta með því að hver verður með sitt eigið eintal á eigin vef. Bensínkallarnir fyrir Norðan hljóta þó að anda rólega þar sem Stebbifr. is back and he´s angry og fúlasta alvara.
King Kong á Skonrokk klukkan 09.00 á laugardaginn. Fannst bara rétt að minna á comebakkið hjá félaga Jakobi og Steini Ármanni. Það þóttu víst stórtíðindi í dag þegar DV kom út á ný og Jón Ólafsson skrapp til Íslands að selja Norðurljósin og Garðabæ. Ekki eru það minni tíðindi úr fjölmiðlaheiminum að King Kong skuli upp risinn.
|
|
 |
 |
Skák og diss
Þriðjudagur, 11. nóvember 2003
Egill Helgason stýrði setningarathöfn KB-einvígis Friðriks Ólafssonar og Larsens með stæl og Björn Bjarnason var brattur í sínu ávarpi (ekki ónýtt að fá úrskurð frá dómsmálaráðherra þess efnis að Hrókurinn sé hinn raunverulegi Íslandsmeistari í skák).
Við Jakob mættum að sjálfsögðu enda Hrafn að verða eini vinur manns í þessum brjálaða heimi. Ég kann mannganginn (held ég) og það nægði til að hafa gaman að þessu. Helvíti fór Páll Baldvin illa með bókina hans Gumma á Stöð 2 í gær. Ég las hana nú í próförk og fannst nú bara alveg sjálfsagt að bókin yrði prentuð og sett á markað. Þá fékk Gummi einnig seal of approval frá bókmenntaátorítetinu Kollu Bergórs. Það er nú ekki ónýtt og reiðilestur Páls kom því á óvart og var full brútal. Hann vakti hins vegar athygli og ég hvet fólk endilega til að lesa bókina og komast þannig sjálft að kjarna málsins. Já, Páll Baldvin fann táfýlu af bókinni en ég get huggað Gumma með því að sumar af mínum uppáhaldsbókum anga af viðbjóðslegri fúkkalykt. Nægir bara að nefna eldri ljóðabækur Ísaks Harðarsonar sem ég hef keypt á niðursettu verði en þær virðast hafa fengið að liggja í einhverjum myglukjallara árum saman. Góðar bækur, samt.
Óli, snillingur og fyrrum félagi minn úr bensínstríðinu, hringdi í dag meðal annars til að tala um SprinkleNetwork fréttina hans RT. Óla bauðst að taka þátt í þessu. Söluræðan var eitthvað á þessa leið: "Ég er hér með 10 milljónir handa þér. Það eina sem þú þarft að gera er að leggja fram 300 000." Óli tók boðinu á staðnum: "Ókey, láttu mig fá þessar 10 milljónir. Dragðu bara 300 þúsund kallinn frá fyrst." Það þarf auðvitað ekki að fjölyrða um það að dílinn var off med det samme.
|
|
 |
 |
Dýrðlegt fjölda(sjálfs)morð?
Mánudagur, 10. nóvember 2003
Þetta Skjallbandalag er að leysast upp í tóma vitleysu þar sem hver snillingurinn á fætur öðrum fremur ótímabær bloggsjálfsmorð. Gríngó er harður nagli og er þegar búinn að henda Palla (sem er alger dóni og hefur skellt í lás You don't have permission to access /pal/ on this server) og Tótu pönk út hjá sér en ég skelli þeim í bjartsýniskasti inn i sviga. Það koma alltaf allir aftur.
Snillingur-jón fær líka svigann enda hefur ekki heyrst neitt frá þessum tilvistarheimspekilega bloggara síðan hann sendi mér tóninn síðast.
Sjálfur er ég búinn að vera að leggja drög að bloggsjálfsmorði undanfarið enda þessi iðja í meira lagi fánýt. Það er lífið sjálft líka þannig að það hvarflaði að mér að slútta þessu líka í raunheimum en eftir að ég kláraði snilldarbókina Dýrðlegt fjöldasjálfsmorð. Það er útilokað að drepa sig frá henni og enn verra að henni lokinni. Þarf nú að drífa í að klára Da Vinci Lykillinn (ekki kálar maður sér frá henni) svo ég geti snarað mér yfir í Svörtu englana hans Ævars. Skítadjobb var ágæt og samkvæmt formúlunni ætti þá þessi að vera betri.
Bætti við slatta ef tenglum um daginn og vek sérstaka athygli á þessu geggjaða fréttatenglasafni hans Guðsteins.
Eplacider á Bessastöðum
Fór í Bessastaðagallann með bindi und alles í morgun til þess að geta rokið beint úr vinnunni á skákhúllumhæ forsetans. Bessastaðir eru lykilstaður í edrúsögu minni en það var einmitt þar, í janúar við afhendingu Íslensku bókmenntaverðlaunanna að það hvarflaði að mér í fyrsta skipti að ég væri hugsanlega, mögulega alkóhólisti en eftir 1 rauðvínsglas í boði ÓRG fann ég fyrir þessum mögnuðu "ofnæmisáhrifum" og Robbi ljósmyndari varð að draga mig út í bíl og ég varð að skrifa fréttina um Ingibjörgu Haraldsdóttur með barinn í hyllingum fyrir hugskotssjónum. Þannig að það var bara eplacider í dag og þrátt fyrir fróma ósk Kollu Bergþórs um að ég færi glasavillt svo hún gæti fengið að sjá mig snappa þá fór allt á besta veg og Larsen fékk Fálkaorðu.
Dorrit var ferlega flott og stóð sig eins og hetja í minglinu. Ólafur verður auðvitað ekki í vandræðum með að pakka Snorra og Ástþóri saman í kosningabaráttu og stærri spámenn ættu að hugsa sig tvisvar um áður en þeir leggja í hann þegar hann getur teflt Dorrit fram.
FréttaDenni er saltvondur yfir þessari slúður/frétta/netpælingu. Ekki var nú ætlunin að æra þann góða dreng en svona skýtur maður stundum yfir markið. Kommentakerfið er opið öllum þeim sem vilja veitast að mér fyrir þetta. Um að gera að hella sér frekar yfir mig en aumingja Leoncie sem hringdi í mig í dag alveg rasandi yfir rasismanum á tilverunni. Og ef þetta verður overkill þá er auðvitað alltaf laust pláss fyrir mann í bloggkirkjugarðinum.
DV dæmið lítur ágætlega út so far. Búið að recruita harða nagla og ekki spillir fyrir að gamli vígamaðurinn Jónas Kristjánsson fái pláss á síðum DV að nýju. Þegar best lætur eru leiðararnir hans heimsbókmenntir og hann á hrós skilið fyrir að vilja ganga til liðs við tapliðið.
|
|
 |
 |
Furðulegur hópur
Föstudagur, 07. nóvember 2003
Fólk hefur gaman að því að tíunda teljaratölur á bloggsíðum sínum og er oft alveg í skýjunum með (hits)teljara.is sem gefur auðvitað kolbrjálaða mynd af raunverulegum gestafjölda.
Hvað um það. Gestagangurinn á BadaBing! veldur mér hvorki hugarangri né gleði en leitarstrengirnir sem draga fólk hingað eru að verða stöðugt skelfilegri. Hvernig má það til dæmis vera að nafn Tómasar Ragnarssonar, lesblidns fyrrum vinnufélaga af Strikinu, nái 1. sætinu? Erótík er númer 2 sem er eðlilegra og svo dúkkar stebbifr upp í 3ja sæti og á eftir fylgja Ole Lund Kirkegaard og Tóta pönk.
Þau tvö geta talist heilbrigð en að öðru leyti líst mér svona mátulega á áhugamál þeirra sem detta hingað inn í gegnum leitarvélar.
Billi Fréttablaðið er að vísu no. 6. Hann er góður drengur sem hefur drukkið með mér og tekið myndir fyrir mig en þeir sem á eftir koma eru:
7. collin farrel
8. klám
9. about lizard
10. rússneska byltingin
11. stormsker
12. Brakúla Greifi
13. Charlize Theron
14. Elvis Presley
15. Harry Potter
16. Helgi Hós
17. Moulan Rouge
18. Mótmælandi Íslands
19. Nói albínói
20. TV Themes
Það yrði ljóti kleppurinn ef allt þetta hittist undir sama þaki.
Þetta gat hins vegar ekki farið öðruvísi:
 You are Form 9, Vampire: The Undying.
Which Mythological Form Are You? brought to you by Quizilla
|
|
 |
 |
Leikvöllur fyrir töffara
Fimmtudagur, 06. nóvember 2003
Gunnar Smári er búinn að kaupa hræið af DV sem verður breytt í leikvölll fyrir töffara. Það er gott mál. Annars er ég hættur að fylgjast með þessu enda ekki stætt á að kjafta frá öllu sem ég veit hér og valta yfir Denna í leiðinni. Sit bara í miðju moldviðrinu umkringdur fólki sem getur leikið sér að því að gera drullugott blað úr DV.
Ég er vanur að halda upp á edrúafmælið í hverjum mánuði með sérstöku ritúali sem hefst á því að ég sest einn inn á Ljóta andarungann og drekk 2 kaffibolla og reyki 2 sígarettur og fer svo í Nexus og gef mér comixbók.
Breytti út af venjunni á 4 mánaða afmælinu í dag og fór með Jakob á París. Hann pantaði stóran bjór og trylltist úr hlátri þegar ég bað þungur á brún um pressukönnu með svörtu kaffi.
Það varð töluvert rennirí á borðið okkar enda við félagarnir óvenjuskemmtilegir þegar sá gálinn er á okkur en það er önnur saga enda allt sem maður heyrir&sér þessa dagana algerlega off record í verstu merkingu þeirra orða.
Sherlock Holmes og Hóras höfðu þetta að segja um stöðu mála á sínum tíma:
Populus me sibilat, at mihi plaudo
Ipse domi simul ac nummos contemplar in arca.
|
|
 |
 |
Mitt rómantíska æði...
Miðvikudagur, 05. nóvember 2003
... eða Tóti flaug yfir Gaukshreiðrið
Mér leiðist og er að spá í að hætta þessu þvaðri og leita mér að einhverju frelsisstríði sem ég get skellt mér í, tekið hitasótt og drepist.
Sá mér til mikillar hrellingar í DV að Engihjallaskríllinn er að eipa á eina kúnnanum sem ég þoldi til lengdar á Stórahjalla. Hann er að vísu tótal lúní en hver er það ekki?
Ég var að vísu búinn að afgreiða hann í mörg ár án þess að átta mig á því að hann væri nuts. Sá hann fyrir mér sem grafalvarlegan jarðfræðikennara í einhverjum menntaskóla en það breyttist aðeins þegar hann kom hlaupandi eitt kvöldið, í svitakófi, inn á stöðina og faldi sig bak við afgreiðsluborðið með 200 geimverur á mótorhjólum, með loftnet upp úr hausnum, á hælunum. Þegar hann reyndi síðan að nappa litlu systur í fatapóker og drap í sígarettu á tungunni fóru að renna á mann tvær grímur, en eftir að hann hótaði að sprengja bensínstöðina "eins og Rambó gerði" snarhækkaði hann í áliti hjá mér og varð kúnni #1.
Ekki spiltu síðar flóttasögurnar af geðdeild fyrir en nú eru smáborgararnir búnir að fá nóg. Sauðmeinlaus (eða þannig sko) kallinn nema honum hafi hrakað á þeim árum sem ég hef verið fjarverandi. Verst bara að hann er haldinn þeim leiðinlega ávana geðsjúklinga að hætta að taka lyfin sín þegar allt gengur vel.
Dóttir mín tilkynnti mér það að hún hefði byrjað í "kynþokkafræðslu" í skólanum í dag. Þegar betur var að gáð reyndist þetta ekki alls kostar rétt og fræðslan snýst um hitt kynið, bindi, tappa, foreldra og tilfinningar. Ætli það sé samt langt í að kynþokkafræðsla verði skyldufag í grunnskólum?
Embargoinu hefur verið aflétt af The Matrix Revolutions og lokatölur eru komnar. Hún er að fá blendnar viðtökur í London og almennt slaka dóma erlendis. Ég gef henni færri stjörnur en síðustu mynd þó sú sé að mörgu leyti leiðinlegri. Þessi þriðja líður væntnalega ekki síst fyrir það, hjá mér og öðrum, að nú er allur pakkinn gerður upp. Þrjár stjörnur með extreme jákvæðni.
Sá Mystic River í gær og þar er sko gott bíó á ferðinni. Eastwood er greinilega að finna taktinn aftur og Sean Penn toppar sjálfan sig í túlkun á multi layered karakter. Þegar hann er kominn í leðurfrakkann, með hanskana og Jack Daniels pelann toppar hann enginn. Ekki einu sinni Mickey Rourke á meðan hann var eitthvað.
|
|
 |
 |
Flett ofan af blaðamanni
Laugardagur, 01. nóvember 2003
Gat ekki sleppt því að láta sjá mig á útgáfuhátíð Sigurðar Pálssonar (þessa með trefilinn) þar sem Hrókur alls fagnaðar, lista- og skemmtideild þessa æðislega fjölhæfa skákfélags sem ég er meðlimur í var með puttana í þessu.
Það er engin spurning að nóvember og desember verða þeir mánuðir sem maður nagar sig mest í handarbökin yfir því að vera hættur að drekka; hvert útgáfuteitið á fætur öðru og alltaf nóg af bjór og böbblí.
Þetta er gósentíð drykkfelldra blaðamanna sem hampa bókum þeirra útgefenda sem eru duglegastir að dæla fríbíum í þá (þetta er sko alvöru játningarannsóknarblaðamennska og ég bíð eftir hrósi frá pakki sem veit ekki rassgat um blaðamennsku, plögg og bókaútgáfu á kommentunum).
Jæja, svo ég haldi áfram að fletta ofan af mér og öðrum þá hitti ég JPV feðgana í banastuði og þeir gerðu umsvifalaust tilboð í æru mína, starfsheiður og þá dálksentimetra sem mér ber að fyllla í hverri viku.
Jóhanni Páli varð að vonum illa brugðið þegar ég sagði honum að ég væri hættur að drekka en hann er fljótur að hugsa og sagðist ætla að fara með mig á Goldfinger í staðinn.
Sigurður, skáld, Pálsson hrósaði, í ávarpi sínu, Jóhanni Páli og Hrafni Jökulssyni (afmælisbarni dagsins) fyrir það að vera svo geggjaðir að þeir hrintu öllum sínum klikkuðu hugdettum í framkvæmd. Ergo: Fyrsta, annað, þriðja Þórarinn Þórarinsson, blaðamaður, er seldur JPV-útgáfu fyrir 5 x 20 mínútna einkadansa.
|
|
 |
 |
|
|
 |
First Aid
Mjölfiðlar
Bloggar
shit and stuff
|
|