»  off record  »  Dýrðlegt fjölda(sjálfs)morð?
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Dýrðlegt fjölda(sjálfs)morð?
Mánudagur, 10. nóvember 2003

punisher.gifÞetta Skjallbandalag er að leysast upp í tóma vitleysu þar sem hver snillingurinn á fætur öðrum fremur ótímabær bloggsjálfsmorð. Gríngó er harður nagli og er þegar búinn að henda Palla (sem er alger dóni og hefur skellt í lás You don't have permission to access /pal/ on this server) og Tótu pönk út hjá sér en ég skelli þeim í bjartsýniskasti inn i sviga. Það koma alltaf allir aftur.

Snillingur-jón fær líka svigann enda hefur ekki heyrst neitt frá þessum tilvistarheimspekilega bloggara síðan hann sendi mér tóninn síðast.
Sjálfur er ég búinn að vera að leggja drög að bloggsjálfsmorði undanfarið enda þessi iðja í meira lagi fánýt. Það er lífið sjálft líka þannig að það hvarflaði að mér að slútta þessu líka í raunheimum en eftir að ég kláraði snilldarbókina Dýrðlegt fjöldasjálfsmorð. Það er útilokað að drepa sig frá henni og enn verra að henni lokinni. Þarf nú að drífa í að klára Da Vinci Lykillinn (ekki kálar maður sér frá henni) svo ég geti snarað mér yfir í Svörtu englana hans Ævars. Skítadjobb var ágæt og samkvæmt formúlunni ætti þá þessi að vera betri.

Bætti við slatta ef tenglum um daginn og vek sérstaka athygli á þessu geggjaða fréttatenglasafni hans Guðsteins.

Eplacider á Bessastöðum

Fór í Bessastaðagallann með bindi und alles í morgun til þess að geta rokið beint úr vinnunni á skákhúllumhæ forsetans. Bessastaðir eru lykilstaður í edrúsögu minni en það var einmitt þar, í janúar við afhendingu Íslensku bókmenntaverðlaunanna að það hvarflaði að mér í fyrsta skipti að ég væri hugsanlega, mögulega alkóhólisti en eftir 1 rauðvínsglas í boði ÓRG fann ég fyrir þessum mögnuðu "ofnæmisáhrifum" og Robbi ljósmyndari varð að draga mig út í bíl og ég varð að skrifa fréttina um Ingibjörgu Haraldsdóttur með barinn í hyllingum fyrir hugskotssjónum. Þannig að það var bara eplacider í dag og þrátt fyrir fróma ósk Kollu Bergþórs um að ég færi glasavillt svo hún gæti fengið að sjá mig snappa þá fór allt á besta veg og Larsen fékk Fálkaorðu.
Dorrit var ferlega flott og stóð sig eins og hetja í minglinu. Ólafur verður auðvitað ekki í vandræðum með að pakka Snorra og Ástþóri saman í kosningabaráttu og stærri spámenn ættu að hugsa sig tvisvar um áður en þeir leggja í hann þegar hann getur teflt Dorrit fram.

FréttaDenni er saltvondur yfir þessari slúður/frétta/netpælingu. Ekki var nú ætlunin að æra þann góða dreng en svona skýtur maður stundum yfir markið. Kommentakerfið er opið öllum þeim sem vilja veitast að mér fyrir þetta. Um að gera að hella sér frekar yfir mig en aumingja Leoncie sem hringdi í mig í dag alveg rasandi yfir rasismanum á tilverunni. Og ef þetta verður overkill þá er auðvitað alltaf laust pláss fyrir mann í bloggkirkjugarðinum.

DV dæmið lítur ágætlega út so far. Búið að recruita harða nagla og ekki spillir fyrir að gamli vígamaðurinn Jónas Kristjánsson fái pláss á síðum DV að nýju. Þegar best lætur eru leiðararnir hans heimsbókmenntir og hann á hrós skilið fyrir að vilja ganga til liðs við tapliðið.


| 20:40 |
komment

Tóti:

Þetta er alveg rétt hjá Leoncie: það er mallandi kynþáttahatur á Íslandi og hefur verið lengi.

Nr. 1 | Organistinn | 11.11.2003 | 11:51:23 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff